08.05.1979
Efri deild: 90. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4475 í B-deild Alþingistíðinda. (3552)

290. mál, lyfjadreifing

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Hér er um yfirgripsmikið mál að ræða sem sjálfsagt er til bóta miðað við það sem áður hefur verið. Ég ætla ekki að ræða mikið um þetta mál, en einu atriði finnst mér ástæða til að vekja athygli á, ekki síst þar sem málið á eftir að fara í meiri skoðun þar sem ekki er gert ráð fyrir að það verði afgreitt sem lög á þessu þingi, og það er í sambandi við lyfjaútibúin að því er varðar V. kaflann.

Ég vil aðeins vekja athygli á að sú skipan, sem lögð er til í II. kafla frv. um stofnun lyfjabúða og lyfsöluleyfi, getur orkað tvímælis í mörgum tilfellum, að mínu mati. Eins og kom fram í ræðu hæstv. ráðh. er lagt til grundvallar að mati þeirrar nefndar, sem hefur samið frv., að til að hægt sé að starfrækja lyfjaverslun þurfi umdæmi með um 3000 íbúa. Vel má vera að nauðsynlegt sé að hafa þá viðmiðun. En ég vil vekja athygli á að eftir að lögin um heilbrigðisþjónustu tóku gildi er víða verið að byggja nýjar heilsugæslustöðvar og hagar þannig til að íbúafjöldi er sums staðar á milli 2 og 3 þús., sem fellur samkv. II. kafla frv. utan við áður greinda skilgreiningu.

Þá vil ég vekja athygli á að nauðsynlegt er að mínu mati að setja skýrari og strangari ákvæði um lyfjaútibúin en kemur fram í V. kafla frv. Ég tel að það þurfi að vera skýr ákvæði og mjög vönduð reglugerð um hvað felist í orðinu „lyfjaútibú“ og hvernig það eigi að starfrækja. Í aths. við 2. gr. frv. er einmitt kveðið nokkuð á um þetta. Hins vegar ber þess að geta, að lyfjaútibúin geta veitt þjónustu sem nálgast verulega þjónustustig lyfjabúða. Slíkt er skilgreint þarna nokkuð ákveðið og þess vegna þarf að mínu mati að semja mjög greinileg reglugerðarákvæði um lyfjaútibúin og allt sem þeim fylgir. Ég segi þetta vegna þess að mér er kunnugt um að til þessa hefur stefnan í þessum efnum verið mjög losaraleg í reipum, svo ekki sé meira sagt.

Ég vil taka undir það með hæstv. ráðh., að sjálfsagt mætti tala langt mál um hvernig lyfsalar hafa notað sér lyfjaútsöluna til almenns verslunarrekstrar. Þó að ég hafi að vísu ekki orðið var við skotfæri í lyfjaverslunum er hægt að segja að það vöruval, sem þar er á boðstólum, yfirskyggir atgerlega þann tilgang, sem maður hefur gert sér í hugarlund að lyfjaverslanir ættu að hafa, og það hlutverk sem þær eiga að gegna. Á þessu þarf að verða breyting, og ég fagna því að greinilega kemur fram í frv. að þarna verða settar strangar reglur.

En ég endurtek: Ég tel að frv. þetta sé mjög gott á margan hátt og fjalli um mál sem hefur ekki verið nógu fast í mótun, og ég legg sérstaka áherslu á að ákvæðið um lyfjaútibú fái vandlega skoðun og um þau verði sett ítarleg reglugerð.