08.05.1979
Neðri deild: 82. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4482 í B-deild Alþingistíðinda. (3580)

200. mál, almannavarnir

Dómsmrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Mál það, sem nú er til umr. um breyt. á lögum um almannavarnir, má segja að staðfesti þá framkvæmd sem hefur verið hjá almannavörnum undanfarin ár. Breytingin er fyrst og fremst fólgin í því, að inn í almannavarnaráð er bætt forstjóra Landhelgisgæslunnar, sem hefur að vísu átt sæti þar undanfarin ár, en þó aðeins sem framkvæmdastjóri almannavarna. Eftir gildandi lögum á framkvæmdastjóri almannavarna m. ö. o. sæti í almannavarnaráði. Forstjóri Landhelgisgæslunnar átti þannig ekki áður sæti í almannavarnaráði. Hins vegar kom mjög fljótlega í ljós að mikilvægt er að forstjóri Landhelgisgæslunnar sitji þar, og má því segja að sá vandi hafi verið leystur með því að skipa forstjóra Landhelgisgæslunnar jafnframt framkvæmdastjóra almannavarnaráðs og skapa honum þannig sæti í almannavarnaráði.

Almannavarnir hafa haslað sér völl í íslensku þjóðlífi og hefur þar verið unnið hið ágætasta verk, eins og ég veit að hv. þm. þekkja t. d. í sambandi við Vestmannaeyjagosið og í sambandi við Mývatnselda. Almannavarnir hafa skipulagt almannavarnanefndir um land allt. Þær eru að sjálfsögðu misjafnlega virkar, en skipulag þetta er nú fyrir hendi og því haldið við með fræðslu og stöðugu sambandi af almannavarnamiðstöðinni í Reykjavík. Því er það svo, að rekstur almannavarna verður aðeins falinn manni sem er þar í fullu starfi. Má segja að það hafi verið fulltrúi framkvæmdastjóra almannavarna.

Ég sé ekki ástæðu til að lengja mál mitt. Frv. fór í gegnum Ed. óbreytt, og er von mín að hv. Nd. sjái sér fært að afgreiða það í því formi sem á því er og að sjálfsögðu fyrir þingslit.

Að svo mæltu leyfi ég mér að leggja til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. allshn.