07.11.1978
Sameinað þing: 15. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 425 í B-deild Alþingistíðinda. (361)
Umræður utan dagskrár
Vilmundur Gylfason:
Herra forseti. Aðeins örfá orð. — Ég þakka fjmrh. fyrir svör hans, þó að ég verði að segja að ég er jafnlítt sannfærður um ágæti þessa máls og ég var áður en hér var upp farið, að ekki sé talað um þegar bæði ráðh. Alþb. og Alþfl. upplýsa að þeir hafi ekki heyrt um þetta mál fyrr en, eins og við hinir, í kvöldfréttum í gærkvöld.
Ég vil enn fremur vekja athygli efnislega á einu því sem fjmrh. sagði. Hann kvaðst e.t.v. geta fallist á, að Alþ. hefði síðasta orðið í þessu máli. Ég hygg að það sé ekkert „e.t.v.“ með það. Hingað til hefur það verið svo, að Alþ. hefur farið með fjárveitingavald í þessu landi, og það gerir það auðvitað í þessu máli eins og öllum öðrum hvað svo sem fjmrh. hefur um það að segja. Allt þetta mál og öll þessi málsmeðferð þykir mér því miður vera óeðlileg, og sem aðili að flokki, sem styður þessa ríkisstj., vona ég að til svona vinnubragða komi ekki í framtíðinni.