09.05.1979
Efri deild: 93. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4505 í B-deild Alþingistíðinda. (3613)

289. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Ég sé ástæðu til að fagna frv. til l. um Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Það eru tvö atriði sem mig langar til að undirstrika, en ég tel að þau hafi nokkra þýðingu. Öðru atriðinu hefur verið bætt við frv. miðað við það sem áður var.

Hið fyrra er í 2. gr. þar sem stendur „að tengja ber starf hljómsveitarinnar tónlistarkennslu í landinu svo sem kostur er“. Ég tel ástæðu til að undirstrika þetta atriði hér, ekki síst með tilliti til þess að það er gífurlega mikill tónlistaráhugi í landinu og hefur aukist á síðari tímum. Það hefur valdið vissum erfiðleikum — og veldur, hversu erfitt er að fá tónlistarfólk til þess að sinna tónlistarkennslu víðs vegar. Ég er ekki í neinum vafa um að Sinfóníuhljómsveit Íslands sem sjálfstæð stofnun hlýtur að geta haft hvetjandi áhrif í þessu efni ef vel er að staðið.

Hitt atriðið, sem ég vil vekja athygli á, er í 3. gr.: „Efna má til samvinnu Sinfóníuhljómsveitar Íslands við Þjóðleikhúsið og aðra aðila,“ eins og stendur í 3. gr. Í grg. stendur að hér sé gerð tilraun til að efla og auðvelda tónlistarflutning Þjóðleikhússins og fleiri aðila, t. d. Íslenska dansflokksins og Íslensku óperunnar. Ég vil í þessu sambandi undirstrika að ég tel nauðsynlegt að fastmótuð sé löggjöf um þetta atriði. Ég vil minna á að það varð merkur tónlistarviðburður hér um síðustu helgi, þar sem Passíukórinn á Akureyri flutti stórverkið „Árstíðirnar“ í Háskólabíói s. l. sunnudag með aðstoð hljóðfæraleikara úr Sinfóníuhljómsveitinni. Varð það mér og sjálfsagt fleiri, sem nutu þess, til mikillar ánægju. Þetta er einmitt merki þess að hægt sé að vænta af stofnun eins og sinfóníuhljómsveit að hún geti aðstoðað á virkan hátt áhugafólk og ýmsa aðila sem hafa áhuga á að auka menninguna á þessu sviði í landi okkar. Slíkt tel ég mikils virði. Taldi ég rétt að undirstrika þessi atriði sérstaklega um leið og ég fagna frv. og lýsi yfir stuðningi við það.