09.05.1979
Efri deild: 93. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4506 í B-deild Alþingistíðinda. (3615)

289. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Menntmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Vegna fsp. hv. þm. Odds Ólafssonar, 4. þm. Reykn., get ég sagt það eitt, að mér er ekki kunnugt um hvort nefndin, sem hafði málið til endurskoðunar í vetur, ræddi sérstaklega við forsvarsmenn viðkomandi sveitarfélaga um þennan þátt málsins, en rn. hefur ekki gert það að þessu sinni. Hins vegar er eins og mig minni að ég hafi heyrt að þegar frv. var upphaflega undirbúið hafi verið haldinn fundur með þessum aðilum, þar sem þeir hafi lýst sig reiðubúna til að taka þátt í samstarfi um rekstur hljómsveitarinnar, og ég hef alltaf gengið út frá því sem gefnu. Mér hefur skilist að það óformlega samkomulag, sem þar var fyrir hendi og mér hefur verið skýrt frá að hafi verið til umr. á sínum tíma, væri óbreytt.

Á þetta mun kannske reyna eitthvað frekar þegar frv. er komið fram og aðilar fá það til umsagnar og er sjálfsagt að skoða það nánar. Sveitarstjórnir taka breytingum eins og aðrir. Það hafá verið haldnar sveitarstjórnarkosningar síðan frv. var fyrst undirbúið og er því auðvitað ekki alveg hægt að útiloka að einhver breyting hafi orðið á skoðunum einstakra sveitarstjórnarmanna hvað þetta atriði snertir.

Hins vegar verð ég að segja það eins og er, að ég tel að þetta sé sjálfsagt mál, sanngirnismál. Hljómsveitin starfar á þessu svæði fyrst og fremst. Enda þótt hún fari að vísu tónleikaferðir út um land er starf hennar að verulegu leyti bundið við þetta svæði. Borgarsjóður Reykjavíkur hefur staðið undir kostnaði að sínum hluta alllengi, en auðvitað segir sig sjálft að fólk úr nálægum byggðarlögum hefur ekkert síður átt þess kost að sækja tónleika en Reykvíkingar. Því virðist fullkomlega sanngjarnt og eðlilegt að létta kostnaði að einhverju leyti af borgarsjóði Reykjavíkur, þannig að öll þessi byggðarlög taki höndum saman um að styðja rekstur hljómsveitarinnar. Er það sjálfsagt mál og eðlilegt. En vissulega þarf að hafa samráð við viðkomandi sveitarstjórnir um þetta, og vænti ég þess að hv. menntmn. beri málið undir viðkomandi sveitarstjórnir og ræði það nánar við þær. — En hvað gerst hefur í tíð fyrirrennara míns er hann líklega hæfari til að gera grein fyrir en ég.