09.05.1979
Efri deild: 93. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4520 í B-deild Alþingistíðinda. (3630)
184. mál, tollskrá
Fjmrh. (Tómas Árnason):
Herra forseti. Ég skal vera mjög stuttorður í þessu efni.
Við erum ekki sammála, hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson og ég, um að ráðherraembættum skuli fylgja embættisbifreið. Verður við það að sitja. En ég vil aðeins taka það fram í sambandi við þessa umr., að enginn ráðh. hefur neina sérstöðu í þessum málum. Settar hafa verið reglur um þessi mál sem verða birtar. Ég mun ekki fara að tíunda þá sögu hvernig einstakir ráðh. standa að þessum málum, meðan þeir fara eftir þeim reglum sem settar hafa verið, og sé enga ástæðu til þess að tíunda það. Þessar reglur eru settar í samræmi við það sem fjárlög heimila um bifreiðakostnað ráðherraembættanna, og ég mun ekki fara að gefa neina skýrslu um hvernig einstakir ráðh. hafa staðið að þessum málum. Þeir hafa allir farið eftir þeim reglum sem um þetta gilda og hafa verið settar og ég læt þar við sitja.