09.05.1979
Efri deild: 93. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4521 í B-deild Alþingistíðinda. (3634)

247. mál, Rafmagnseftirlit ríkisins

Frsm. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Iðnn. Ed. mælir með að þetta frv. verði samþ. Í n. hafa hins vegar komið fram skoðanir sem draga í efa réttmæti eins ákvæðis í þessu frv., hækkun prósentugjalds úr 1% í 1.5%, og einstakir nm. hafa áskilið sér rétt til að flytja brtt. sem einn þeirra hefur gert, um það efni. N. hefur í dag borist erindi frá Rafmagnseftirliti ríkisins og Orkustofnun um þetta atriði. Ég mælist til þess við hæstv. forseta að efnisákvörðun um þetta ágreiningsatriði verði látin bíða þar til iðnn.-menn hafa fengið tækifæri til að kynna sér það álit og málið verði þá endanlega afgreitt til 3. umr.