09.05.1979
Neðri deild: 83. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4523 í B-deild Alþingistíðinda. (3646)
Umræður utan dagskrár
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Ég hef kvatt mér hljóðs utan dagskrár til að beina þeirri fsp. til hæstv. forsrh., hver sé í raun og veru stefna ríkisstj. í kaupgjaldsmálum. Ástæðan er sú, að undanfarna daga og raunar vikur ef ekki mánuði höfum við heyrt mismunandi yfirlýsingar ráðh. um kaupgjaldsmál og stefnu og aðgerðir í kaupgjaldsmálum. Þær yfirlýsingar, sem hafa gengið á víxl út og suður, hafa haft afar skaðleg áhrif og leiða raunar í ljós að núv. ríkisstj. hefur enga stefnu í kaupgjaldsmálum. Það er því ekki að ófyrirsynju að þessari fsp. er beint til hæstv. forsrh., enda hefur þá fyrst farið út í öfgar um mismunandi yfirlýsingar þeirra ráðh. þegar ég tek hæstv. yfirráðh., hv. þm. Lúðvík Jósepsson með í ráðherrahópinn, eftir viðtal hans við Þjóðviljann í morgun. Þar kemur fram, að hann kennir samstarfsflokkum Alþb. í ríkisstj. um allt það, sem úrskeiðis hefur farið að hans mati, og veitist þar sérstaklega að hæstv. fjmrh.
Ég ætla mér ekki að gerast dómari í deilum þeirra starfsbræðranna, en athyglisvert er að þær eru komnar á hástig einmitt eftir að úrslit eru kunngerð í atkvgr. um samkomulag BSRB-forustunnar og ríkisstj. sem fellt hefur verið.
Ástæðuna fyrir því, að samkomulagið við BSRB var fellt í allsherjaratkvgr., segja ráðh. sjálfir vera í fyrsta lagi að Reykjavíkurborg hafi lyft launaþakinu. En hverjir stjórna núna Reykjavíkurborg og hverjir eru þeir stjórnendur Reykjavíkurborgar sem stóðu að þeirri ákvörðun? Það eru hinir sömu stjórnmálaflokkar sem þar eiga fulltrúa og standa að núv. hæstv. ríkisstj. Það eru því stjórnarflokkarnir sem bera ábyrgð á þessu. Við heyrðum í vetur að hæstv. forsrh. vildi einkum og sér í lagi kenna þar um einum borgarfulltrúa og réðst ekki á garðinn þar sem hann var hæstur, borgarfulltrúanum Guðrúnu Helgadóttur. En þá var hann jafnskjótt minntur á að Kristján Benediktsson, framkvæmdastjóri þingflokks Framsfl., ætti og sæti í borgarstjórn og hefði greitt atkv. með ákvörðun borgarstjórnar Reykjavíkur.
Í öðru lagi er því kennt um að Kjaradómur hafi lyft launaþakinu hjá opinberum starfsmönnum. En spyrja má: Hvers vegna lyfti Kjaradómur launaþakinu? Það var ekki orsök þarna á ferðinni, heldur afleiðing af samþykkt borgarstjórnar Reykjavíkur. Líka má segja að ákvörðunarástæða Kjaradóms hafi legið í því, eftir því sem haft er eftir hv. þm. Lúðvík Jósepssyni, að meiri hl. ráðh. í ríkisstj. Íslands hafi lýst þeirri skoðun sinni að lyfta bæri launaþakinu af og það væri einskis nýtt og óeðlilegt.
Það er í þriðja lagi sagt að ástæðan fyrir úrslitum atkvgr. hafi verið að launaþakið hafi lyfst hjá flugmönnum. En hvað var þar á undan gengið? Við munum fréttir um að tveir hæstv. ráðh. í ríkisstj., hæstv. samgrh. og hæstv. félmrh., gengust fyrir að sáttaumleitanir færu fram til lausnar deilu flugmanna. Um það var ekkert nema gott að segja. En þeir létu því miður ekki þar við sitja, heldur gekk ekki á öðru en yfirlýsingum þessara ráðh., einkum þó yfirlýsingum frá hæstv. félmrh. Að sögn ráðh. átti að gera þetta eða það átti að gera hitt. Hótanir ráðh. sjálfra urðu til þess að aðilar málsins gerðu e. t. v. miður skynsamlegt samkomulag. Hótanir ráðh. sjálfra lyftu ekki aðeins launaþakinu, heldur feyktu launaþakinu af.
Í fjórða lagi er sagt að kaupkröfur farmanna eigi hér hlut að máli. En hverjir hafa kveikt betur í þeim kaupkröfum en ráðh. sjálfir með yfirlýsingum sínum, og á meðan er ekki einu sinni reynt að ná sáttum? Það kom fram í viðtali við einn forustumanna farmanna, sem raunar var einn af forvígismönnum kröfunnar um „samningana í gildi“ fyrir einu ári og á víst sæti í verkalýðsráði Alþb., að þarna væri ríkisstjórninni um að kenna, ríkisstj. kæmi í veg fyrir að sáttaumleitunum væri haldið áfram.
Í fimmta lagi er því borið við að verðhækkanir, sem samþykktar hafa verið undanfarna daga, eigi hlut að því að samkomulagið við BSRB var fellt. Það má vel vera, enda hafa verðhækkanirnar aldrei verið jafnmiklar á jafnskömmum tíma, eða frá 20% til 60% á ýmiss konar vöru og þjónustu frá áramótum. Ósköp eðlilegt er að það veki athygli, að þeir menn, sem áður töldu allar verðhækkanir vera á valdi stjórnvalda og þeim að kenna, standa nú ráðalausir og agndofa þegar þeir hafa sjálfir valdið, en geta að vonum ekkert gert. Von er að það veki athygli þegar þeir menn sem hafa gortað af því að hafa komið verðhækkunum niður í 23% á ársgrundvelli, standa nú frammi fyrir því að verðbólgan verður 40–50% — og einstaka aðilar spá yfir 100% á ársgrundvelli.
Af öllum ofangreindum ástæðum og afskiptum einstakra ráðh. og ríkisstj. í heild af kaupgjaldsmálum er ekki óeðlilegt að spurt sé hver sé stefna ríkisstj. í kaup- og kjaramálum.
Hver er stefna hennar varðandi kjör félagsmanna Bandalags starfsmanna ríkis og bæja? Enn hefur ekki verið svarað hvort staðið verður við samkomulagið af hálfu ríkisstj. og 3% grunnkaupshækkun greidd út að felldu samkomulaginu eða ekki.
Spurt er hvernig fari um kaup og kjör félaga í Bandalagi háskólamanna og hvað felist í samkomulagi sem eitt blaðanna segir að undirritað hafi verið við þau samtök á föstudaginn var.
Eðlilegt er að spurt sé hvernig fer með kaupgjald bankamanna, en sú yfirlýsing liggur fyrir að nýsamþykkt efnahagslög leiði til þess að þeir fái enga grunnkaupshækkun. Breytist þetta ef aðrir fá grunnkaupshækkun?
Hvernig stendur á að ekki er haldið áfram sáttaumleitunum í farmannadeilunni, og er það rétt staðhæfing hjá Ingólfi Ingólfssyni, forseta Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, að ríkisstj. sé um að kenna að þeim sáttaumleitunum sé ekki haldið áfram?
Þá er eðlilegt að spurt sé um afskipti ríkisstj. af deilu mjólkurfræðinga, en þeir hafa boðað verkfall frá og með 14. maí n. k.
Og loks er eðlilegt að spyrja hver sé stefna ríkisstj. gagnvart öðrum launþegahópum, eins og t. d. gagnvart Verkamannasambandi Íslands.
Stjórnarflokkarnir kenna hver öðrum um ófarir sínar í kaupgjaldsmálum og í samskiptum við aðila vinnumarkaðarins. Þessi stjórn var mynduð á þeim grundvelli og með því fyrirheiti að nú skyldi haft sérstakt samráð við aðila vinnumarkaðarins, en það hefur leitt til þess að sjaldan eða aldrei hefur verið meiri órói eða óeirð á vinnumarkaðinum en í tíð núv. stjórnar. Þótt stjórnarflokkarnir kenni þannig hver öðrum um ófarirnar eiga þeir allir sameiginlega sök á þeim, þótt fyrri stjórnarandstöðuflokkar skeri sig e. t. v. úr, Alþb. og Alþfl. Fyrir um ári voru formælendur þessara flokka, sem hér eru enn í þingsölunum, að tala um nauðsyn þess að fá samningana í gildi og um skemmdarverk þáv. ríkisstj. gagnvart hagsmunum launþega. Þá töldu þessir menn að laun og kaupgjald í landinu hefðu ekki nokkra þýðingu í baráttunni gegn verðbólgunni, en eftir að þeir eru komnir í ríkisstj. snýst starf þeirra ekki um annað meira en að fikta við gerða kaup- og kjarasamninga eða koma í veg fyrir að þeir séu gerðir. Það er svo órafjarri að haldið sé við loforðið „samningana í gildi“. Að svo miklu leyti sem Framsfl. á betri hlut að máli fram til myndunar núv. ríkisstj. skrifaði hann á víxilinn um samningana í gildi við myndun núv. ríkisstj. En sá víxill hefur fallið hvað eftir annað og lent í mismunandi miklum vanskilum, fyrst 1. sept., þá 1. des., svo 1. mars og núna fellur hann 1. júní og lendir þá í hvað mestum vanskilum.
Núv. ríkisstj., formælendur kjörorðsins „samningana í gildi“, hefur einhliða ákveðið kaup og kjör í landinu með lagasetningu, og ef dæma má eftir ummælum sem eftir hæstv. viðskrh. eru höfð í blöðum í morgun er ætlunin að halda því áfram. Er nú ekki tími til kominn að varpa nokkurri ábyrgð á aðila vinnumarkaðarins sjálfa og leggja áherslu á að þeir semji sín á milli um kaup og kjör af þeirri ábyrgð sem aðstæður og skilyrði í þjóðarbúinu skapa á líðandi stund?
Það er upplýsandi að rifja upp þessa þætti þegar höfð er í huga umræða um kaupgjaldsmál fyrir ári. Og ekkert upplýsir betur þróun þessara mála og svikin loforð en viðtal Þjóðviljans við hv. þm. Lúðvík Jósepsson í morgun þar sem hann í átta liðum varpar sökinni á óförum ríkisstj. í kaupgjaldsmálum á samstarfsflokka sína alfarið. En í áttunda lið kemur rúsínan í pylsuendanum. Þar segir hann að það sé ekki sambærilegt að Reykjavíkurborg undir meirihlutaforustu Alþb.-manna í borgarstjórn hafi feykt þakinu af launasamningum, vegna þess að það hafi verið gert fyrir þingkosningar. Hitt sé svo eðlilegt að þak hafi verið sett á af ríkisstj. eftir þingkosningar. Það er sem sagt ekki sama hvað er gert fyrir kosningar og hvað er gert eftir kosningar. Sannast hér hið fornkveðna: „Oft er fagurt í eyra alþýðulof af hræsni veitt.“ Og meiri hræsni í íslenskum stjórnmálum hefur ekki verið afhjúpuð en sú framkoma og sá áróður sem núverandi stjórnarflokkar hafa haft í frammi fyrir og eftir kosningar. Það er kominn tími reikningsskilanna og kominn tími til að þessir hræsnarar standi fyrir máli sínu.