07.11.1978
Sameinað þing: 15. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 427 í B-deild Alþingistíðinda. (365)
Umræður utan dagskrár
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að lýsa vanþóknun á því, að menn skuti velja sér efni utan dagskrár hér á hv. Alþ. þegar þeir menn, sem um er að ræða, eru ekki staddir á þingi. En í tilefni af því, sem hv. 1. þm. Reykv. sagði áðan í sambandi við forustugrein dagblaðsins Vísis, þá finnst mér að það hefði átt að fylgja með hjá honum vanþóknun á því, sem þar kemur fram og er aðalefni þessarar umræddu greinar. Yfirskriftin er, eins og hv. alþm. sjálfsagt vita og alþjóð hefur fengið að heyra: „Alþingisloddarar“. Þar stendur, með leyfi hæstv. forseta:
„Þau mál, sem hafa hleypt þessum umr. af stað, eru annars vegar tillaga Ólafs Ragnars Grímssonar um rannsókn á Eimskip og Flugleiðum og hins vegar tillaga Alberts Guðmundssonar um rannsókn á SÍS og dótturfyrirtækjum þess. Efnislega er ekki unnt að taka tillögur þessar of alvarlega fyrir þá sök að hvorugur flm. nýtur þess álits, sem til þarf. Þeir eru hvor í sínum flokki fulltrúar gaspurs og slagorða.
Ólafur Ragnar Grímsson vill ganga milli bols og höfuðs á Flugleiðum og Eimskip vegna einokunaraðstöðu fyrirtækjanna. En lausn hans er sú að gera þau að ríkiseinokunarfyrirtækjum. Þá er einokunin af hinu góða. Málflutningur af þessu tagi er gaspur, eða brak og brestir eins og Lúðvík Jósepsson lýsir honum“.
Það er e.t.v. ástæða til fyrir hv. alþm., sem væntanlega gera sér grein fyrir þeim skyldum sem á þeim hvíla, að svara opinberlega svona aðdróttunum í opinberu málgagni. Jafnvel er frekari ástæða til þess að hv. 1. þm. Reykv. geri það á hv. Alþ., og e.t.v. 3. landsk. þm. einnig í sambandi við þetta mál.