09.05.1979
Neðri deild: 83. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4536 í B-deild Alþingistíðinda. (3651)

Umræður utan dagskrár

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég vil fyrst þakka forsrh. fyrir svör hans við fsp. mínum, þótt ég hljóti að gera nokkrar aths. við þau svör.

Forsrh. svaraði því til, að stefna ríkisstj. í launa- og kjaramálum væri óbreytt frá því sem ákveðið var þegar hún var mynduð. En síðar í ræðu sinni tók hann sérstaklega fram að skapast hefðu ný viðhorf í launamálum, bæði vegna áfangahækkunarinnar og þaklyftingarinnar. Sem sagt: eins og stendur er ríkisstj. stefnulaus í kaup- og kjaramálum.

Stefnan er ekki óbreytt í raun. En við skulum aðeins dvelja við það, hver var stefnan við myndun þessarar ríkisstj. Hún var að samningarnir skyldu ganga í gildi. Og hvað fólst í því annað en að þeir samningar, sem þá áttu að gilda til 1. des. s. l., áttu óbreyttir að ganga í gildi og enn fremur átti eðlilega að taka upp frjálsa samninga að loknu því samningstímabili? Hvað fólst í því í raun og veru annað en ríkjandi samningar milli ríkis og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja og BHM skyldu ganga í gildi og þar á meðal áfangahækkun á þessu ári? Það eru þessi loforð sem ríkisstj. hefur svikið. Það eru þessi kosningaloforð Alþb. og Alþfl. sem ríkisstj. hefur svikið. Og þessi loforð eru sá víxill sem Framsfl. skrifaði upp á eftir kosningarnar við myndun þessarar ríkisstj., en ríkisstj. hefur svikið.

Við getum endurtekið í þessum umr., hv. þm. Lúðvík Jósepsson og ég, það sem við höfum sagt áður um í hverju svikin eru fólgin. Það er alveg augljóst mál að auknar niðurgreiðslur í þeim mæli og með þeim hætti, sem framkvæmt var við byrjun þessarar ríkisstj., eru í raun fölsun á vísitölunni, bæði vegna þess, sem hv. þm. Friðrik Sophusson átti við er hann greip fram í ræðu Lúðvíks Jósepssonar og benti honum á að gamla kjötið var ekki til á markaðinum þegar neytendur ætluðu að kaupa það, en líka vegna hins, að niðurgreiðslur hafa meiri áhrif á kaupgjaldsvísitöluna til lækkunar en til lækkunar á heimilisútgjöldum fjölskyldnanna í landinu. Það er líka fölsun í því fólgin að hækka beina skatta á launþegum í landinu, sem ekki verka til hækkunar kaupgjaldsvísitölu, til þess að standa undir auknum niðurgreiðslum, sem lækka kaupgjaldsvísitölu, og láta þannig neytendur í landinu borga eigið kaup niður með auknum sköttum. Þetta eru svik og ekkert nema svik sem 1. þm. Austurl. hefur staðið fyrir og haft forgöngu um, ekki bara í þessari ríkisstj., heldur og í fyrri vinstri ríkisstj. sem hann hefur setið í.

Það er ekki að furða þó hv. 1. þm. Austurl. hafi verið nokkuð ákafur í ræðuflutningi sínum áðan. Sök bítur sekan. Hann hefur verið meistari talnaleiks með vísitöluna til að koma aftan að launþegum og reyna að blekkja þá. En þegar á Alþ. í fyrra komu fram hreinskilnar ráðstafanir og nauðsynlegar til þess að hafa hemil á verðbólgunni í landinu var þessi maður standandi upp og æsandi launþega upp til skemmdarverkar.

Ég frábið mig því hrósi, eins og hlýtur að hafa átt að vera af munni hv. þm. Lúðvíks Jósepssonar, að ég hafi æst launþega upp á Alþ. í vetur. Ef það er að æsa launþega upp á Alþ. að krefjast þess af fyrri stjórnarandstöðu, bæði Alþb. og Alþfl., svo og af málsvörum Framsfl. eftir að þeir gengu í björg með fyrri stjórnarandstöðu, að þeir standi við eigin orð, að þeir standi við eigin loforð, má e. t. v. til sanns vegar færa að ég hafi æst menn upp. En ég held að slíkt sé ekki annað og meira en sú krafa sem gera verður til allra okkar alþm., að við stöndum við orð okkar og við segjum ekki tvennt ólíkt fyrir og eftir kosningar.

Það er einmitt höfuðatriði þessa máls, að málsvarar Alþb. og Alþfl. sögðu allt annað við kjósendur fyrir kosningar en þeir hafa framkvæmt eftir kosningar. Kemur það berlegast fram í viðtalinu við Lúðvík Jósepsson sjálfan í Þjóðviljanum í morgun, þar sem hann segir berum orðum að sérstaða sveitarfélaganna í landinu hafi verið að þau hefðu getað lyft launaþakinu vegna þess að sú ákvörðun var gerð fyrir þingkosningar. En ekki var skynsamlegt að áliti Lúðvíks Jósepssonar að gera slíkt hið sama eftir kosningar. Nei, það var ekki sambærilegt. Þá var áhætt að svíkja kosningaloforðin. Þetta kalla ég hræsni og ítreka það og endurtek og legg áherslu á. Og það er fyrir þessa hræsni sem m. a. meðlimir innan Bandalags starfsmanna ríkis og bæja eru að refsa fyrri málsvörum sínum sem þeir héldu vera.

Við getum rakið áfram hvernig núv. ríkisstj. hefur brotið loforðið um samningana í gildi, ekki eingöngu með því að leggja aukna áherslu á niðurgreiðslur sem gagnast ekki launþegum í sama mæli og kaupgjald mundi hafa gert, heldur og með ýmsu öðru. En áður en ég vík frá niðurgreiðslunum er stutt í efndir þess atriðis stefnuskrár ríkisstj. að auka niðurgreiðslur sem svarar 10 prósentulyftingum í kaupgjaldsvísitölu á þessu ári. Í fyrsta lagi hafði ríkisstj. reist sér þann hurðarás um öxl með þessu loforði að hún gafst upp við efndirnar þegar við gerð fjárlaga fyrir yfirstandandi ár og ætlaði ekki nægilegt fjármagn til þess arna. En það er ekki nóg með það. Hún gengur með nýsamþykktu efnahagsfrv. frá loforði sínu um auknar niðurgreiðslur og lækkað vöruverð landbúnaðarvara og segir berum orðum að draga eigi úr niðurgreiðslum í áföngum á þessu ári, á næsta ári og árinu þar á eftir. Hvað er nú orðið af skrautfjöðrinni þeirra Alþb.-manna? Þegar auknar niðurgreiðslur, lækkað vöruverð landbúnaðarvara, er að engu orðið og vöruverð landbúnaðarvara verður næst ákveðið kemur sú hækkunaralda fram með langtum meiri þunga sem fyrirsjáanleg er, vegna þess að vandinn var aukinn með aukningu niðurgreiðslna á s. l. hausti. Hagspeki þeirra Alþb.-manna kemur þeim í koll. Hagspeki Alþb.-manna dregur Alþfl. og Framsfl. með út í fenið. Og það þýðir lítið að koma með kurteisleg og að ýmsu leyti skynsamleg orð, eins og t. d. hæstv. sjútvrh. sem lætur blekkja sig hvað eftir annað, eins og flokksbróðir hans sagði okkur áðan, hv. síðasti ræðumaður, 7. þm. Reykv.

Eigum við kannske að ræða nánar um vísitöluþakið? Ég held að það væri nær að þeir í stjórnarherbúðunum yrðu til þess að ræða það mál sín á milli og gera upp sakir sín á milli varðandi vísitöluþakið. Í átta punktunum hans Lúðvíks í Þjóðviljanum í morgun er fyrsti punktur: Ráðh. Framsfl. gerðu það að till. sinni að lyfta launaþakinu í byrjun árs. Annar punktur: Frv. forsrh. er peð í tafli formanns BHM af því að hann er framsóknarmaður. Þriðji punktur: Þakið af, sögðu kratar. Sjötti punktur: Tómas Arnason básúnar það út án samráðs við ríkisstj. að lyfta skuli þakinu og greiða BSRB-mönnum og BHM-mönnum það sem þaklyftingin jók tekjur þeirra. Sjöundi punktur: Hvorki fyrrv. né núv. formenn Framsfl. höfðu dug í sér eða skynsemi til þess að bera úrskurð Kjaradóms undir dómstóla. Og svo var áttundi punkturinn, sem ég hef þegar gert að umtalsefni, um sérstöðu bæjarfélaga sem var í því fólgin að ákvörðun þeirra var gerð fyrir þingkosningar, en ákvörðun ríkisstj. eftir.

Efnislega er líka unnt að ræða um vísitöluþakið. Ég gerði það ekki. Þegar fulltrúar Alþb. töluðu um vísitöluþakið fyrir kosningar átti það að fjúka af vegna þess að innifalið var í samningunum að það væri ekki til. Þess vegna eru það auðvitað svik á því kosningaloforði að setja það aftur á. Hv. 1. þm. Austurl. telur þá Alþb. menn vera alla sammála um að lyfta vísitöluþakinu af. Ég held nú síður. Ég ráðlegg 1. þm. Austurl., Lúðvík Jósepssyni, að fara í smiðju til t. d. Benedikts Davíðssonar, formanns verkalýðsráðs Alþb., og spyrja hann um skoðun hans á því að lyfta vísitöluþakinu af. Ástæðan til þess, að ekki er alfarið óréttlátt að lyfta vísitöluþakinu af, er einmitt sú, að launataxtar í landinu eru byggðir upp með svo mismunandi hætti og með svo blekkjandi móti að sumir hinir tekjuhæstu menn í þjóðfélaginu fá fullar vísitölubætur þrátt fyrir vísitöluþakið, þótt aðrir, sem á mörkum liggja, fái launaskerðingu af því, ef launataxtar þeirra koma hreinskilið fram í útborgun launa, en eru ekki faldir í alls konar álagsgreiðslum o. s. frv.

Það er líka íhugunarvert að annmarkinn á vaxandi launamun í þjóðfélaginu er e. t. v. ekki fólginn í því í sjálfu sér að lyfta vísitöluþakinu, heldur í samningum um vísitölugreiðslur eða verðbætur á laun. Það væri nær að uppörva og hvetja aðila vinnumarkaðarins til að semja sín á milli um réttlátar vísitölubætur, en ætla ekki þm. að fjalla um það efni nema í neyðartilvikum, eins og fráfarandi ríkisstj. leit á málin á s. l. vetri. En síðan er liðið eitt ár og nægur tími hefði verið fyrir aðila vinnumarkaðarins að komast að skynsamlegum samningum, bæði hvað snertir grunnkaup og verðbætur launa. Þeir, sem töluðu um samningana í gildi, hefðu átt að stuðla að því, að slíkir samningar væru gerðir, í stað þess að vera sífellt að krukka í gerða kjarasamninga frá því að stjórnin var mynduð og til þessa dags.

Þegar stjórnin var mynduð var önnur höfuðstoð stjórnarmyndunarinnar, fyrir utan auknar niðurgreiðslur, að hækka launin, sem þeir sögðu að fælist í loforðinu og efndum loforðsins „samningarnir í gildi“. En hvert hefur verið verkefni ríkisstj. allar götur síðan? Að lækka launin. Þeir hækka fyrst launin í sept. þegar þeir byrja stjórnarstörfin og þá einkum á hæst launaða fólkinu, ekki á lægst launaða fólkinu sem hafði aðeins dagvinnutekjur, en allar götur síðan eru allar gerðir ríkisstj. við það miðaðar að lækka launin sem fólkið átti von á að fá. Ég er ekki með þessu að segja að þessar aðgerðir ríkisstj. hafi ekki að einhverju leyti haft rök að baki sér. En ég er að segja að þær aðgerðir stinga í stúf við það sem þessir menn og flokkar sögðu fyrir kosningar. Þessir menn, sem áður sögðu að laun og launatilkostnaður í landinu hefðu enga þýðingu hvað snertir afkomuskilyrði atvinnuveganna, atvinnuöryggi eða gengi íslensku krónunnar eða í baráttunni gegn verðbólgunni, eru nú allt í einu í vetur, þegar þeir eru komnir í ríkisstj., búnir að gera sér grein fyrir að auðvitað hafa launin þýðingu hvað snertir þessa málaþætti, þótt ýmislegt annað komi einnig til.

Það er sagt að sjálfstæðismenn hafi beitt sér gegn samningum BSRB og ríkisins. Ég veit ekki um einn einasta sjálfstæðismann t. d. hér innan þingsala sem hefur látið orð í ljós sem túlka mætti þannig.

Nei, það er víst og öruggt að svikin á loforðinu „samningarnir í gildi“ felast í mörgu öðru en vísitöluþakinu, felast m. a. í margs konar skerðingarákvæðum í sept., nóv., des., mars og síðasta efnahagsfrv. Þannig er upplýst af málgögnum Alþb. sjálfs t. d., að vísitöluskerðingin, kaupgjaldsskerðingin við útborgun launa 1. júní, verður 6–7%, þ. e. a. s. meiri en átti sér stað með febrúarlögunum fyrir rúmu ári. Og það er ekki nóg með það. Samkv. febrúar- og maí-lögunum var sérstakt tillit tekið til láglaunahópanna og skerðing þeirra var engin eða mun minni en hinna sem hærri launin höfðu. Nú eru slík ákvæði afar takmörkuð og gilda aðeins í nokkra mánuði samkv. efnahagsfrv. Þannig gæta Alþb.-menn hagsmuna hinna lægst launuðu.

Ég vil, áður en ég læt máli mínu lokið, vekja athygli á því, að samkv. því, sem hæstv. forsrh. sagði, er ljóst að það er stefna hans og ríkisstj. að greiða út 3% grunnkaupshækkun til BSRB-manna og Bandalags háskólamanna, og jafnframt telur hann eðlilegt að sú grunnkaupshækkun fari út í launakerfið allt, en hann tók fram að hvað snerti ASÍ-samningana yrði að gera sjálfstæða samninga og sömuleiðis við bankamenn. Þar sem ríkisbankarnir ráða í raun ferðinni hvað snertir kjör bankamanna sýnist ekki verða fyrirstaða gegn slíkum samningum þeirra vegna, en ég hlýt þó samt sem áður að vekja athygli á að það er alveg augljóst, a. m. k. hvað snertir bankamenn, að ríkisstj. hefur breytt samningum um grunnkaup. Hún hefur fellt niður umsamda grunnkaupshækkun án þess að nokkuð kæmi í staðinn. Það hefði gilt ef samningarnir við BSRB hefðu verið samþykktir af félagsmönnum þar. Auðvitað höfðu forvígismenn BSRB ekki á stefnuskrá sinni að fella niður 3% grunnkaupshækkun nema vegna þess að þeir töldu sig fá eitthvað í staðinn sem aðrir launþegahópar hefðu einnig haft í huga að meta sjálfum sér til framdráttar næst þegar kaupkröfur væru gerðar.

Ég vil að gefnu tilefni orða hæstv. forsrh. segja, að það má vel vera að ríkissáttasemjari hafi ekki haldið fund í farmannadeilunni vegna þess að hann búist ekki við árangri. Og rétt er það, að ríkissáttasemjari er sjálfstæður í starfi. En ef sú skýring er rétt, að ríkissáttasemjari boði ekki til funda vegna þess að hann eigi ekki von á árangri, hver skyldi þá vera ástæðan fyrir því? Skyldi ástæðan ekki m. a. vera ótímabærar yfirlýsingar ráðh., fleiri en eins, um væntanlegar og fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstj. í launamálum? Slíkar hótanir geta bæði orðið til þess að samningar takist, og þá mismunandi skynsamlegir eins og við flugmennina, og geta líka orðið til þess að aðilar segi sem svo: Það þýðir ekkert að vera að tala saman ef ríkisvaldið ætlar að grípa inn í deiluna með lagaboði. — Þess vegna hlýt ég að undirstrika hversu óheppilegar yfirlýsingar ráðh. í núv. ríkisstj. eru í tíma og ótíma um hvað þeir ætli að gera og hvað þeir ætli ekki að gera í sambandi við lausn vinnudeilna sem þeir hingað til hafa þvegið hendur sínar af og sagt að ríkisvaldið ætti ekki að hafa nokkur afskipti af.

Varðandi verðlagshækkanir vil ég ítreka það, að ég legg ekki sjálfstæðan dóm á hvort þær eru of miklar eða ættu að vera meiri eða minni. En hitt var athyglisvert, að hæstv. forsrh. gaf fyllilega í skyn að hann ætti í vök að verjast innan ríkisstj. gegn ráðh. Alþb. til að koma í veg fyrir hækkunartillögur og hækkunaráform ráðh. Alþb. Ég sagði í fyrri ræðu minni að verðhækkanir væru oft og tíðum og oftast ekki á valdi ríkisstj. Ég vakti athygli á að það voru fulltrúar Alþb. og núv. stjórnarflokka sem gagnrýndu fyrrv. ríkisstj. fyrir að hækka verð á vöru og þjónustu. En sannleikurinn er sá, að það er ekki á valdi ríkisstj. á hverjum tíma nema að mjög takmörkuðu leyti að standa í vegi fyrir verðhækkunum þegar verðbólga er svo mikil sem raun ber vitni um. Og oft og tíðum er skynsamlegra að heimila verðhækkanir fyrr en seinna, fremur en t. d. að fjármagna rekstur opinberra fyrirtækja með erlendum lánum, eins og dæmi eru til um, með þeim afleiðingum að verðið er nú eða verður í framtíðinni hærra en þurft hefði að vera.

Herra forseti. Ég þakka fyrir það umburðarlyndi sem mér hefur verið sýnt. Ég tel þó það málefni, sem ég hef hér haft frumkvæði að rætt yrði, svo mikilvægt að ekki mátti bíða að fá svör ríkisstj. Þau eru að vísu óskýr. Í raun og veru er sagt að engin stefna sé í kaup- og kjaramálum eða það eigi eftir að móta þá stefnu. Það kom skýrt og greinilega fram hjá forsrh., hjá hv. 1. þm. Austurl., hv. 7. þm. Reykv. svo og hæstv. sjútvrh. Ég held að hv. 7. þm. Reykv., Vilmundur Gylfason, hafi komist einhvern veginn svo að orði, að framhald stjórnarsamstarfsins yrði ekki leikið af fingrum fram. Mín spurning er nú sú: Hver er sá maður sem á að „kompónera“ marsinn sem núv. ríkisstj. ætlar að ganga undir á næstunni? Ég veit ekkert það tónskáld sem þess er um komið að „kompónera“ þann mars sem yrði til þess að stjórnarherrarnir gengju samstiga. Því fyrr, því betra er að þessi stjórn fari frá og nýjar kosningar fari fram. Þá er allt eins líklegt að dómur kjósenda um störf núv. ríkisstj. verði svipaður og fram kom í atkvgr. innan BSRB, en samkv. túlkun hv. þm. Vilmundar Gylfasonar var þar um dóm um störf núv. ríkisstj. að ræða.