09.05.1979
Neðri deild: 83. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4541 í B-deild Alþingistíðinda. (3652)
Umræður utan dagskrár
Viðskrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég vil hugga hv. 4. þm. Reykv. með því, að hann verður ekki beðinn um að „kompónera“ neitt, hvorki marsa né önnur tónverk, fyrir hæstv. núv. ríkisstj. Reynslan af tilraunum hans til þess að „kompónera“ hugverk er þjóðinni svo kunn og jafnframt svo dapurleg að ekki mun nokkur maður láta sér til hugar koma, nema e. t. v. hans allra nánustu og tryggustu vandamenn í Sjálfstfl., að stiga spor eftir þeim marstakti sem hann kann að sveifla tónsprota til í framtíðinni. Við sáum vel hvernig honum gekk að sveifla slíkum tónsprota á landsfundi Sjálfstfl. á dögunum, og ég hygg að landsmenn hafi ekkert með slíka leiðsögn að gera.
Ég kom hingað aðallega upp vegna þeirra ummæla sem féllu hjá hv. 7. þm. Reykv. áðan. Hann rakti nokkuð af hverju það stafaði að samkomulagið hafði verið fellt í Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. Ég er honum ósammála í grundvallaratriðum í þeim efnum. Ég tel að ástæðurnar til þess, að samkomulagið féll, hafi verið margar og flóknar. Ég tel að fyrsta og meginástæðan hafi verið sú, að á Alþ. allt frá því um áramót hafi átt sér stað milli stjórnarflokkanna mjög hörð átök um kjaramál. Og ég tel að öskurþingmennska eins og sú sem hv. 7. þm. Reykv. hefur tamið sér í vetur hafi ekki orðið til að styrkja stöðu stjórnarinnar eða tiltrú launamanna í þessu landi á stjórnarflokkunum.
Ég tel í annan stað, að sá samningur, sem gerður var við flugmenn á sínum tíma, hafi verið óheppilegur og þá hafi verið spillt fyrir möguleikum á því að framfylgja áfram heillegri efnahags- og launajöfnunarstefnu eins og ríkisstj. hafði sett sér í öndverðu.
Ég hygg að ein ástæðan til þess að samkomulagið var fellt hafi verið sú, að þó nokkur hópur manna — vegna þess hvernig störf þeir vinna — innan BSRB er þeirrar skoðunar að verkfallsréttur sé þeim ekki nauðsynlegur eða nothæfur við þær aðstæður, sem þeir starfa, til þess að knýja fram breytingar á kjörum sínum. Ég held og að ein ástæðan sé sú, að þarna voru ýmsir flokksbundnir menn í Sjálfstfl., sem jafnframt eru forustumenn í ýmsum félögum opinberra starfsmanna, að beita sér mjög hart flokkspólitískt, án þess að ég sé að segja að Sjálfstfl. „eigi“, eins og það er orðað af hv. 4. þm. Reykv., þá andstæðinga samkomulagsins sem felldu það á dögunum. Ég held að hann geti ekki eyrnamerkt sér kjósendur frekar en nokkur annar maður, sem betur fer.
Ég held að ýmsar fleiri ástæður séu fyrir þessu. Af þeim þarf ríkisstj. að læra og hún þarf að taka ákvarðanir í launamálum og kjaramálum í samræmi við þá niðurstöðu. Niðurstaða mín er ekkí sú, að kosningaúrslitin í BSRB sýni að samráðið við verkalýðshreyfinguna sé í raun og veru ónýtt og tilgangslaust, eins og mér skildist á hv. 7. þm. Reykv. áðan. Ég tel þvert á móti að ein skýringin á því, hversu þessum málum er komið, geti verið að samráðið við verkalýðshreyfinguna í landinu hafi ekki verið eins náið og vera skyldi. Ég mótmæli því alfarið þeim viðhorfum sem fram komu hjá hv. 7, þm. Reykv. í garð þessa samráðs sem hefur verið eða átti að vera einn af hornsteinum stjórnarsamstarfsins.
Ég verð að segja að mér fannst einnig athyglisvert hjá hv. 7. þm. Reykv. þegar hann hafnaði því algerlega, sem þó hefur verið stefna ríkisstj. frá því að hún var mynduð, að eðlilegt væri að setja á vísitöluþak. Það gerðum við með samstarfsyfirlýsingu stjórnarflokkanna strax 1. sept. Ég ítreka að við Alþb.-menn erum þeirrar skoðunar, að rétt sé og skynsamlegt að setja á vísitöluþak þannig að verðbætur skrúfist ekki upp eftir öllum launastiganum. Og ég vil endurtaka það sem fram kom áðan, að auðvitað er þessi skoðun í samræmi við þá afstöðu, sem fram hefur komið hjá flokki okkar á undanförnum árum, og hún er í samræmi við afstöðu verkalýðshreyfingarinnar í landinu.
Það er svo með hv. 7, þm. Reykv., sem því miður er víst fjarstaddur núna, að þegar hann fer að tala um hlutina kemst hann stundum hnyttilega að orði, en stundum bregst honum hrapallega bogalistin og stundum kemur fyrir að hann ætlar sér að reyna, að því er virðist, að fleyta kerlingar á tiltölulega lítilli þekkingu á allflóknum málum oft og tíðum, eins og þegar hann hélt því fram í ræðu sinni áðan að það, sem haft er eftir mér í dagblaðinu Þjóðviljanum í dag, þýði að ég sé að gera till. um sams konar efnahagsráðstafanir og hv. þm. Geir Hallgrímsson beitti sér fyrir sem forsrh. í febr. 1978. Þær ráðstafanir höfðu það innihald að vísitölubætur á laun voru skertar um helming á dagvinnulaun, sem mundi þýða að vísitölubætur hækkuðu líklega um 5% á dagvinnukaup 1. júní í staðinn fyrir um 9%, miðað við þær verðtagsspár sem liggja fyrir. Efnahagsráðstafanir hv. þm. Geirs Hallgrímssonar, sem Vilmundur Gylfason var að líkja við hugmyndir mínar áðan, fólu það auk þess í sér, og það er atriði sem ótrúlegustu menn gleyma, að álag á næturvinnu og eftirvinnu til launafólks í landinu hefði í raun og veru þurrkast út á einu ári. Hefðu ráðstafanir Geirs Hallgrímssonar verið í gildi núna og áfram væri kaupið í eftirvinnu og næturvinnu orðið mjög svipað og það er fyrir dagvinnu. Og svo kemur hv. þm. Vilmundur Gylfason í ræðustól og heldur því fram, að það, sem haft er eftir mér í Þjóðviljanum í dag, þýði hið sama. Þetta er þekkingarleysi af versta tagi eða misskilningur. Hið síðarnefnda væri fyrirgefanlegt. (Gripið fram í: Hvorugt.)
Ég vil einnig minna hv. þm. Vilmund Gylfason á, þannig að það komi fram enn þá einu sinni héðan úr ræðustól og af vörum mínum og í tilefni af orðum hans í vetur, að það var ritari Alþfl., Björn Jónsson, forseti Alþýðusambands Íslands, sem var smiðurinn að slagorðinu „samningana í gildi“. Ég tel að þetta slagorð hafi í raun og veru verið fyrst og fremst mótað af honum fyrir Alþýðusamband Íslands.
Ég minni á að fyrir kosningarnar s. l. birtist frétt í Morgunblaðinu og fréttir frá þingmálafundum þar sem frambjóðendur Alþb. úti á landi höfðu tjáð sig um vísitölubætur. Hæstv. núv. menntmrh. hafði þá sagt að það kæmi vel til álita og gæti verið eðlilegt að takmarka vísitölubætur á hærri laun. Því er útúrsnúningur og ekkert annað þegar hv. þm. Vilmundur Gylfason heldur því fram að við séum að ganga á bak orða okkar þegar við krefjumst þess að þak sé sett á vísitölubætur. Það er í samræmi við það, sem við sögðum fyrir kosningar, og það sem flokkur okkar og verkalýðshreyfingin í landinu hafa alltaf sagt.
Ég ætla ekki að þessu sinni, vegna þess hvað tíminn er knappur, að fara að rökræða frekar við hv. þm. Vilmund Gylfason. Ég tel að margt af því, sem fram kom í máli hans áðan, hafi verið þannig gagnvart verkalýðshreyfingunni í landinu að langar umr. þyrfti í rauninni til að fara ofan í það. Ég er honum ósammála í mikilvægum grundvallaratriðum. Afstaða hans og umræður um verkalýðshreyfinguna í landinu minna mig á afstöðu þá sem komið hefur fram og kennd er við Margaret Thatcher í Bretlandi. Það á að taka á þrýstihópum, Alþ. á að stjórna, eins og hv. 7. þm. Reykv., Vilmundur Gylfason, er búinn að básúna hér í ræðustólnum hvað eftir annað í allan vetur. (Gripið fram í.). Þessi afstaða til verkalýðshreyfingarinnar er andsnúin skoðunum mínum í grundvallaratriðum.
Ég vil einnig segja það í tilefni af því sem fram kom hjá hv. 4. þm. Reykv., af því að ekki er óhætt lengur að ávarpa þann 7., hann er orðinn svo ókyrr í stólnum, að það er alveg greinilegt hver er sú stefna sem Sjálfstfl. vill í rauninni framfylgja í kjaramálum á Íslandi um þessar mundir. Það er stefna Vinnuveitendasambands Íslands. Morgunblaðið málgagn hv. þm., einkamálgagn segja sumir, m. a. flokksmenn hans, hefur aldrei svarið af sér þá efnahagsstefnu sem sett hefur verið fram í tillögum Vinnuveitendasambandsins, sem hefði þýtt niðurfellingu vísitölubóta á laun að fullu og öllu. Og það er fróðlegt þegar þessi hv. þm. kemur svo upp í ræðustólinn og lýsir því yfir að launafólk og atvinnurekendur í landinu eigi að reyna að leysa þessi mál með kjarasamningum sín á milli og þannig eigi hnútarnir að leysast. Ég held að eins og staðan er núna og miðað við þær yfirlýsingar, sem gefnar hafa verið af atvinnurekendum, sé slíkt afar erfitt fyrir verkalýðshreyfinguna, nema stjórnvöld vilji efna til stéttastríðs í landinu, eins og hv. 4, þm. Reykv. innti af höndum hvað eftir annað á stjórnarferli sínum.
Það hefur ekkert komið fram í málflutningi Sjálfstfl. um kjaramál annað en að hann vilji í rauninni styðja till. Vinnuveitendasambands Íslands. Og það alvarlegasta í þessum málum öllum finnst mér vera að jafnvel innan annarra stjórnmálaflokka hafa heyrst raddir sem eru afskaplega fjandsamlegar verkalýðshreyfingunni í landinu. Einn af hugmyndafræðingum Sjálfstfl., einn af hæstaréttardómurum landsins, flutti um það útvarpserindi fyrir nokkrum dögum að í raun og veru væri nauðsynlegt að setja í stjórnarskrána ákvæði um að takmarka umsvif „þrýstihópa“ í landinu. Þegar svona er komið og menn láta sér detta í hug að beita grundvallartexta íslenskra löggjafar gegn félagasamtökum og félagafrelsi er eitthvað mikið að.