09.05.1979
Neðri deild: 83. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4551 í B-deild Alþingistíðinda. (3681)

143. mál, lögræði

Frsm. meiri hl. (Vilmundur Gylfason):

Herra forseti. Á þskj. 595 leggur meiri hl. allshn. Nd. til að breytingar á lögum um lögræði, sem fram hafa verið lagðar, á lögum nr. 95 frá 5. júní 1947, sbr. lög nr. 75/1967, verði samþ. Þau, sem mynda meiri hl., eru: Vilmundur Gylfason, Einar Ágústsson, Friðrik Sophusson, en hann skrifar undir með fyrirvara, Svava Jakobsdóttir, Gils Guðmundsson og Árni Gunnarsson. Á hinn bóginn skilar hv. þm. Matthías Á. Mathiesen séráliti.