09.05.1979
Neðri deild: 83. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4567 í B-deild Alþingistíðinda. (3690)
265. mál, tollheimta og tolleftirlit
Albert Guðmundsson:
Herra forseti. Ég skal ekki á þessu stigi ræða efnislega frv. það sem hér er til umr., aðeins óska eftir því, þar sem ég á ekki aðgang að fjh.- og viðskn., að hæstv. ráðh. láti kanna hvort ekki er réttara að þau tímatakmörk, sem getið er um í 1. gr., verði miðuð við komudag aðflutningsskjala eða pappíra, eins og það er kallað á máli viðskiptaaðila, í stað þess að miða við komutíma vörunnar til landsins. Það er mjög oft sem vara er komin til landsins, en aðflutningsskjöl koma ekki. Þau geta glatast í meðförum erlendis, í erlendum bönkum og víða á leiðinni, jafnvel eftir komu til landsins. Oft stendur þó nokkuð lengi á pappírum sem innflytjendur á vörum til landsins þurfa á að halda til að ganga á löglegan hátt frá sendingum. Hér er miðað við komutíma vörunnar til landsins, en talsvert mikill munur er á þessu tvennu.