07.11.1978
Sameinað þing: 15. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 430 í B-deild Alþingistíðinda. (371)
21. mál, aðbúnaður og hollustuhættir á vinnustöðum
Fjmrh. (Tómas Árnason):
Herra forseti. Að minni ósk var umr. um þessa fsp. frestað á þeim fundi er fjallað var um fsp. síðast en fsp. er í þremur liðum. Ég ætla aðeins að rifja málið upp en það er hv. þm. Matthías Bjarnason, sem gerir fsp. Hún er um niðurskurð fjárframlaga samkv. fjárl. 1978, á þskj. 21. Fyrirspurnin er á þessa leið:
1. Hver er heildarniðurskurður fjárframlaga á fjárlögum þessa árs?
2. Hvernig skiptist hann á milli málaflokka og á einstakar framkvæmdir eða framlög í hverjum málaflokki? Óskað er skriflegs svars.
3. Hver gerði till. um þennan niðurskurð og hvaða reglur voru hafðar til hliðsjónar?
Þar sem beðið var um að einn liður af þremur þessarar fsp, væri skriflegur svaraði ég fsp. alfarið skriflega og liggur hún á borði hv. alþm. þannig svarað. Umr. um fsp. eða mínu svari var frestað vegna þess að hv. þm. hafði óskað eftir frekari sundurliðun en kemur fram í hinu skriflega svari. Vil ég nú verða við því að svara því atriði sérstaklega.
Að því er varðar lækkun fjárframlaga á einstökum fjárlagaliðum vil ég taka fram eftirfarandi:
1. Lækkun fjárframlaga til byggingar menntaskólanna á Ísafirði og í Kópavogi snertir eingöngu Menntaskólann í Kópavogi, enda er þegar búið að ráðstafa allri fjárveitingunni til byggingarframkvæmda Menntaskólans á Ísafirði. Þannig er ekki um að ræða neinn niðurskurð á framlögum til framkvæmda við Menntaskólann á Ísafirði, eins og var þó á vissu stigi málsins ætlunin. Það kom á daginn við nánari athugun, að búið var að binda þessa fjárveitingu í bak og fyrir.
2. Lækkun fjárframlaga til byggingar grunnskóla, skóla fyrir þroskahömluð börn og framkvæmda Vegagerðarinnar hefur ekki verið skipt á einstakar framkvæmdir, en það verður gert síðar á árinu í samráði við fjvn.
3. Lækkun fjárframlaga til bændaskólanna í Hólum og í Odda um 10 millj. kr. skiptist að jöfnu milli skólanna.