10.05.1979
Sameinað þing: 91. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4573 í B-deild Alþingistíðinda. (3711)

358. mál, framkvæmd vegáætlunar 1978

Menntmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Þetta mun í fimmtánda sinn sem lögð er fram á Alþ. og mælt er fyrir skýrslu um framkvæmd vegáætlunar. Skýrslan, sem hér hefur verið lögð fram, skiptist í tvo meginþætti, þar sem annars vegar er gerð grein fyrir innheimtu tekna.

Vegasjóðs og hins vegar skiptingu útgjalda. Þessir meginþættir greinast síðan eðli sínu samkv. í allmarga undirflokká þar sem gerð er nánari grein fyrir hvorum þeirra um sig. Loks fylgja skýrslunni sem fskj. grg. um helstu framkvæmdaflokkana.

Heildarupphæð fjárveitinga til vegamála samkv. vegáætlun á síðasta ári var 9 300 millj. kr. Um mitt ár var ráðstöfunarfé Vegasjóðs aukið um 220 millj. kr. með hækkun bensíngjalds í samræmi við hækkun byggingarvísitölu auk þess sem ríkisframlag var hækkað um 40 millj. kr. Í heild urðu tekjur af bensíngjaldi þó 54 millj. kr. lægri en áætlun gerði ráð fyrir, en það má rekja til þess að fyrirhuguð hækkun á miðju ári var í raun framkvæmd síðar.

Innheimtar tekjur af þungaskatti urðu 102 millj. kr. undir áætlun. Ef miðað er við tekjur á föstu verðlagi og tillit tekið til aukningar dísilbifreiða hafa tekjur af þungaskatti heldur minnkað á síðustu árum og má rekja ofangreindan halla til ofáætlunar á þessum tekjustofni.

Tekjur af gúmmígjaldi urðu 96 millj. kr. eða 6 millj. kr. umfram áætlun og má rekja það til meiri innflutnings bifreiða en gert var ráð fyrir í tekjuspám.

Ríkisframlag var í vegáætlun 1978 1 300 millj. kr., en var hækkað um 150 millj., sem er mismunur á innheimtu og áætlun á mörkuðum tekjustofnum Vegasjóðs, auk þeirra 40 millj., sem áður gat.

Samkv. vegáætlun skyldi ríkissjóður afla lánsfjár að upphæð samtals 2 200 millj. kr. til að brúa bilið milli áætlaðra framkvæmda samkv. vegáætlun annars vegar og tekjuöflunar hins vegar, þ. e. markaðra tekna og ríkisframlags. Alls þessa lánsfjár var aflað með útgáfu spariskírteina, en engin happdrættisskuldabréf voru gefin út á árinu. Hluti lántökunnar, 800 millj. kr., var að forminu til af lánsfjáröflun til Norður- og Austurvegar, en að öðru leyti var lántakan í samræmi við lánsfjáröflun ríkisstj.

Vextir, afborganir og lántökukostnaður vegna þessara lána svo og allra þeirra lána, sem tekin hafa verið til vegagerðar frá upphafi voru greidd úr ríkissjóði utan vegáætlunar eins og venja hefur verið undanfarin ár.

Í vegáætlun var heimild til töku vinnulána eða annarra bráðabirgðalána til nýrra stofnbrauta að upphæð 400 millj. kr. Var gert ráð fyrir að afla þeirra hjá verktökum, vinnuvélaeigendum og heimamönnum í viðkomandi héruðum með fyrirheiti um endurgreiðslu á tímabilinu febr.-mars 1979 án vaxta. Ekki tókst þó að afla meira en 231 millj. kr. lánsfjár á þennan hátt af 400 millj. kr. lánsheimild. Auk þessa voru tekin ýmis önnur bráðabirgðalán og námu þau í árslok alls 410 millj. kr.

Þegar vegáætlun var lögð fram á Alþ. í febr. 1978 voru meðalverðlagshækkanir milli áranna 1977 og 1978 áætlaðar 30%. Voru öll markmið og stefna vegáætlunar miðuð við þá hækkun. Verðlagsþróun breyttist hins vegar mjög til hins verra er leið á árið og raunveruleg verðhækkun var mun meiri. Til að mæta þessum verðhækkunum var dregið úr framkvæmdum við nýbyggingu vega og sumarviðhaldi. Óhjákvæmilega varð nokkur halli á öðrum bundnum liðum. Snjómokstur var 225 millj. kr. umfram áætlun, sem bæði má rekja til verðhækkana umfram áætlun og einnig til meiri snjómoksturs en áætlað hafði verið, m. a. vegna nýrra reglna þar um er tóku gildi 1977. Þá var enn fremur 20 millj. kr. halli á bundnum liðum stjórnunar og undirbúnings. Þáttur þessi verður greiddur af vegáætlun 1979.

Í sept. á s. 1. ári ákvað ríkisstj. að fresta fjárveitingu til framkvæmda samkv. vegáætlun að upphæð 100 millj. kr. Þar sem svo var liðið á framkvæmdatímabilið að komið var fram á haust reyndist ekki unnt að dreifa frestun almennt á framkvæmdir, heldur varð fyrst og fremst að fresta þeim verkefnum sem þannig stóðu að þau voru óunnin, og þau eru ekki mörg þegar komið er fram á þennan árstíma.

Í skýrslunni er gerð nákvæm grein fyrir notkun vegasjóðsfjár, bæði hvað varðar viðhald, nýbyggingar og endurbyggingar, og verður það ekki rakið hér frekar, en vísað til skýrslunnar.

Eins og jafnan áður voru fjárveitingar til nýrra vega og brúa stærsti liðurinn á útgjaldahlið vegáætlunar 1978. Var mestum hluta þessa fjár varið til endurbyggingar á eldri vegum og til að byggja nýjar brýr. Nefna má nokkur helstu verkefnin á þessu sviði.

Haldið var áfram að leggja slitlag á Suðurlandsveg austan Þjórsár og á Eyrarbakkaveg. Byggður var vegur milli Garðs og Sandgerðis. Lagt var slitlag á hluta Akranesvegar og haldið var áfram framkvæmdum við Borgarfjarðarbrú. Vestfjarðavegur um Hörgsnes var tekinn til umferðar svo og Djúpvegur við Ísafjörð. Á Holtavörðuheiði, Hrútafjarðarhálsi og Öxnadalsheiði voru teknir í notkun alllangir kaflar sem eru sérstaklega mikilvægir fyrir vetrarsamgöngur. Þá var haldið áfram vegagerð með bundnu slitlagi norðan Akureyrar og uppbyggingu vegar á Melrakkasléttu. Lagt var bundið slitlag á Austurlandsveg við Egilsstaði og Norðfjarðarveg í Reyðarfirði. Á Breiðamerkursandi var lokið við þýðingarmikinn áfanga.

Af brúargerðum á s. l. ári má einkum nefna brýr yfir Eldvatn í Meðallandi, Víðidalsá í Húnavatnssýslu, Búðarárgil í Húsavík og Njörvadalsá í Reyðarfirði.

Í skýrslunni er gerð grein fyrir tilraunum með ódýrari gerð bundins slitlags en áður hefur verið notuð hér á landi. Eru þessar tilraunir byggðar á norskum fyrirmyndum og er talið að umrætt slitlag sé 30–40% ódýrara en olíumalarslitlag. Yfirborðsgæði þessa slitlags eru mun minni en olíumalar, en þó talin fullnægjandi þar sem umferð er ekki mjög mikil. Alls var lagt á um 16 km með þessari nýju aðferð. Full reynsla fæst vart fyrr en að nokkrum árum liðnum. En þar sem hér er um mikið hagsmunamál að ræða ef vel tekst til verður þessum tilraunum haldið áfram á næstu árum ef að líkum lætur.

Herra forseti. Ég læt þessi orð nægja til að fylgja úr hlaði skýrslu um framkvæmd vegáætlunar 1978. Þetta er mjög vönduð og ítarleg skýrsla og ég vísa að öðru leyti til hennar.