10.05.1979
Sameinað þing: 91. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4576 í B-deild Alþingistíðinda. (3714)

253. mál, rannsókna- og þróunarstarfsemi í þágu atvinnuveganna

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Ég ásamt þm. hv. Stefáni Jónssyni, Ágúst Einarssyni, Garðari Sigurðssyni, Oddi Ólafssyni og Þórarni Sigurjónssyni flyt þáltill. um langtímastefnu í rannsókna- og þróunarstarfsemi í þágu atvinnuveganna. Flm. þessarar till. eiga allir sæti í Rannsóknaráði ríkisins og við þeir tveir fyrst nefndu, Stefán Jónsson og ég, í framkvæmdanefnd Rannsóknaráðs. Þar sem 1. flm., hv. þm. Stefán Jónsson, er ekki á þingi eins og sakir standa, flyt ég framsöguræðu í þessu máli.

Efni þessarar till. er tvíþætt: Annars vegar að ríkisstj. marki langtímastefnu í rannsókna- og þróunarstarfsemi í þágu atvinnuveganna og hins vegar að árlega verði endurskoðuð áætlun höfð til hliðsjónar við ákvarðanir um fjárveitingar. Í grg., sem er ítarleg og samin af framkvæmdanefnd Rannsóknaráðs, er bent á vaxandi hlutverk tækniþekkingar og afraksturs rannsókna í aukinni velmegun undanfarinna ára og áratuga. Íslendingar njóta að sjálfsögðu þess starfs sem unnið er í viðskiptalöndunum og skilar sér í lækkuðu vöruverði og fullkomnari tækni. En ef við ætlum okkur ekki að dragast aftur úr verðum við að geta lagt sjálfir eitthvað eftirsóknarvert frem á alþjóðamarkaði.

Í grg. er á það bent, að Íslendingar verji minni fjármunum til rannsókna- og þróunarstarfs en aðrar þjóðir á svipuðu þróunarstigi eða 0.3–0.5% af vergum þjóðartekjum, þegar nágrannaþjóðirnar verja til þess u. þ. b. 1–2.5% af sínum þjóðartekjum. Aðeins á sviði hafrannsókna og landbúnaðar verja Íslendingar fjármagni sem er í svo háu hlutfalli við vinnsluvirði viðkomandi atvinnuvega. Í iðnaði, þar sem flestar aðrar þjóðir verja hlutfallslega mestu fjármagni til rannsókna- og þróunarstarfsemi, er hlutfallið aðeins um 0.1% af vinnsluvirði atvinnuvegarins. Í öðrum úrvinnslugreinum, byggingariðnaði og fiskvinnslu, er útkoman lítið betri.

Enda þótt samanburður við útlönd sé ekki einhlítur bendir þetta þó til þess að Íslendingar hafi vanrækt rannsókna- og þróunarstarfsemina, og raunar hefur það oft komið okkur illa að meiri háttar framkvæmdir um stefnumótun í málefnum þjóðfélagsins hafi ekki byggst á nægilega rannsökuðum forsendum.

Spyrja má hvort ekki megi styðjast við erlendar rannsóknir og spara þannig fé íslenskra skattborgara. Því er þá til að svara, að auðvitað hljótum við að tileinka okkur rannsóknaniðurstöður og tækninýjungar annarra. En á það verður að leggja áherslu, að atvinnulíf hverrar þjóðar er háð umhverfisskilyrðum náttúrunnar og vilja fólksins. Danir geta t. d. að sjálfsögðu nýtt sér fullkomlega landbúnaðarrannsóknaniðurstöður Þjóðverja, náttúruleg skilyrði og efnahagsleg markmið eru mjög svipuð í báðum löndum. Öðru máli gegnir um okkur af augljósum ástæðum. Við lifum í hrjóstrugu landi þar sem gróður er ákaflega viðkvæmur og allt öðruvísi samsettur. Sérstakar aðstæður hér á landi leiða því til annars konar rannsókna en stundaðar eru erlendis í landbúnaði, og þannig er á fleiri sviðum atvinnulífsins þótt ég fjalli ekki frekar um það hér.

Allir íslenskir stjórnmálaflokkar sækjast eftir meiri hagsæld, bættum kjörum. Þess vegna má slá því föstu að hagvöxtur sé þjóðfélagslegt markmið. Til að örva hagvöxtinn verðum við að stuðla að hagræðingu og tækniframförum í hverri grein, en jafnframt verðum við að færa vinnuafl og fjármagn úr framleiðslugreinum með lágri framleiðni í greinar með hárri framleiðni, en slík tilfærsla er megineinkenni hagþróunar á öllum tímum í öllum löndum. Hér gefst ekki tóm til að fjalla ítarlega um þá þætti sem hafa áhrif á hagvöxtinn, en mig langar þó til að vitna til ummæla Sigurgeirs Jónssonar aðstoðarbankastjóra sem hann viðhafði á ráðstefnu BHM um lífskjör hér á landi sem haldin var s. l. haust. Sigurgeir flutti þar ræðu um efnahagslegar forsendur lífskjaranna og sagði m. a. með leyfi hæstv. forseta:

„Vöxtur þjóðarframleiðslu, sem í daglegu tali er nefndur hagvöxtur, hefur að jafnaði verið um 41/2% á ári hér á landi síðasta aldarfjórðunginn, en mjög sveiflukenndur eins og annað í hagkerfinu. Þetta er í meðallagi gott miðað við önnur nágrannalönd og virðist fljótt á litið viðunandi. Þegar betur er skoðað kemur annað í ljós. Bæði aukning vinnuafls og fjárfesting, sem eru meginundirstöður hagvaxtar, hafa verið miklar og svipaðar og í þeim löndum þar sem hagvöxtur hefur verið hvað mestur, þannig að þess vegna hefði hagvöxtur átt að geta verið ein 6% á ári lauslega áætlað. Við virðumst því hafa fengið minna út úr okkar vinnuafli og fjármagni en aðrir. Síðustu árin hefur jafnframt dregið úr hagvexti hér á landi og er hann nú um 3.5% á ári.“

Síðar í ræðu sinni sagði Sigurgeir, með leyfi forseta: „Bandaríski hagfræðingurinn Edward Denison hefur gert tilraun til þess að greina orsakir og þætti hagvaxtar í ýmsum löndum. Hér á eftir verður gerð tilraun til þess að meta þessa þætti hér á landi og mögulegan heildarhagvöxt á næsta áratug. Reikna má með að mannafli til vinnu á næsta áratug vaxi um tæp 2% á ári, en vinnutími styttist nokkuð og samsetning verði óhagstæðari. Á móti komi áhrif aukinnar almennrar menntunar þannig að hreint framlag vinnuafls til vaxtar þjóðarframleiðslu verði um 11/2% á ári. Þetta væri í hærra lagi, en ekkert einsdæmi miðað við önnur lönd. Ef fjárfesting og sparnaður verða álíka mikil og verið hefur síðustu áratugina á fjármagnið að halda áfram að aukast talsvert hraðar en vinnuaflið, og má áætla að framlag þess til vaxtar þjóðarframleiðslu gæti orðið a. m. k. 1% á ári miðað við reynsluna í öðrum löndum, en þar hefur slíkt framlag í nokkrum löndum verið yfir 1% í langan tíma og allt upp í 2% í Japan, en hér er talan 1% valin með tilliti til þess að afskriftatími fjárfestinga er með lengra móti hér á landi. Almennar framfarir í tækni í heiminum á þessu tímabili og vaxandi þekking ættu að geta skilað hér á landi um 1% á ári ef sæmilega er fylgst með og framleiðslutæki endurnýjuð reglulega. Þetta mætti e. t. v. auka upp í 11/2% á ári þegar frá líður með sérstökum aðgerðum til að ná upp nýjustu tækni og með auknum rannsóknum á sviði fiskveiða og annarra undirstöðuþátta íslenskrar þjóðarframleiðslu. Í mörgum löndum er framlag þessa þáttar eins áætlað yfir 1% og allt að 2% í Japan. Rétt er að taka það fram, að hér er fyrst og fremst um að ræða áhrif tækniframfara og hagræðingar innan hverrar greinar fyrir sig, en ekki áhrif af tilkomu nýrra greina.“

Þá fjallaði Sigurgeir um fleiri þætti sem áhrif hafa á hagvöxtinn, en hélt síðan áfram, með leyfi forseta: „Þegar framlag allra framangreindra þátta er lagt saman virðist hugsanlegt að auka megi þjóðarframleiðslu Íslendinga um 7–71/2% á ári að meðaltali á næsta áratug eða auka hana um 6–61/2% á íbúa, ef allir möguleikar eru nýttir. Þetta þýðir um tvöföldun heildarframleiðslunnar á tæpum 10 árum og tvöföldun á hvern íbúa á rúmlega 10 árum. Þetta væri góður árangur á heimsmælikvarða, en þó hvergi nærri einsdæmi. Japanir juku þjóðarframleiðslu sína um 9% á ári um langt árabil, og Kórea, Brasilía og fleiri lönd gera enn betur um þessar mundir. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um það, hve mikils virði væri að ná slíkum árangri þar sem aukning þjóðarframleiðslunnar er eina örugga undirstaða batnandi lífskjara hér á landi. Flestir eru sammála um, að þau séu nú lakari en í nágrannalöndunum og brýna þörf beri til þess að jafna þann mun sem fyrst.

Lykillinn að því að fá mikið út úr þessum þáttum öllum er að ráðstafa fé til fjárfestingar á hverjum tíma með hagkvæmum hætti. Framfarir í tækni eru sífellt að opna nýjar og hagkvæmari leiðir til framleiðslu og þjónustu. Verkaskipting og sérhæfing milli fyrirtækja og þjóða fer vaxandi og stærri framleiðslueiningar skila að jafnaði lægri framleiðslukostnaði á hverja afurðaeiningu. Um leið og fé er fest í framleiðslutækjum eða mannvirkjum er um leið tekin ákvörðun um framleiðni og hún fest til nokkurs tíma.

Ekki er því hægt að gera of mikið úr því, að öll skilyrði til skynsamlegrar ákvörðunartöku um fjárfestingu séu fyrir hendi, en þau eru fyrst og fremst að þeir, sem ákvarðanirnar taka, séu vel upplýstir tæknilega og víðskiptalega, fjármagnið, sem þeir ráðstafa, beri eðlilega raunvexti og milliríkjaviðskipti séu frjáls og án tolla.

Sérstakar kröfur þarf að gera til fjárfestingaákvarðana opinberra aðila þar sem samkeppni er þeim yfirleitt ekki sama aðhald og einkarekstrinum og á þeim er alls konar sérhagsmunaþrýstingur.

Ég vík nú aðeins að þeim leiðum sem ég tel að þurfi að fara til þess að hægt sé að ná þeim árangri að tvöfalda þjóðarframleiðsluna á 10 árum. Alla vega næst hann ekki að öllu óbreyttu og líklegast að hagvöxtur verði þá svipaður og að undanförnu eða um 31/2% á ári og 21/2% á íbúa. Það þýddi að 20 ár tæki að tvöfalda þjóðarframleiðsluna í heild og 28 ár að tvöfalda hana á íbúa. Undirstöðuatriðið er að yfirvöld og allur almenningur geri sér raunsæja grein fyrir því, í hvaða atvinnugreinum Íslendingar hafa mesta möguleika á að ná mikilli framleiðni. Yfir í þær greinar þarf smám saman að færa þann hluta vinnuaflsins, sem ekki er þegar í þessum greinum og færanlegur er. Þessar greinar eiga að skera sig úr fyrir það að geta borgað vexti og afskriftir af framleiðslutækjum og þar að auki greitt hátt kaup í samkeppni bæði við fyrirtæki erlendis og íslenskan sjávarútveg.

Ef framleiðsla á Íslandi á að geta greitt hátt kaup má hún ekki vera í samkeppni við láglaunaiðnað þróunarlandanna þar sem kaup er oft ekki nema tíundi hluti þess sem hér er. Dæmi um framleiðslu þessara landa eru almennar vefnaðarvörur og skófatnaður, niðursuðuvörur, trjávörur, húsgögn, skip o. fl. Þessi lönd sækja stöðugt á að fara inn á fleiri og fleiri svið, eins og glögglega hefur orðið vart hér á landi. Þetta er þróun sem ekki verður stöðvuð og verða mun meira og meira áberandi þáttur í efnahagsmálum heimsins á komandi árum. Þetta er reyndar eina leiðin til þess að verulegar framfarir geti orðið í þessum löndum. Framleiðsla á Íslandi getur heldur ekki borgað hátt kaup ef hún er í beinni samkeppni við hin háþróaðri iðnaðarlönd á þeim sviðum þar sem þau standa best að vígi. Þeirra viðbrögð við samkeppni þróunarlandanna eru að fara í vaxandi mæli yfir í hátæknilega framleiðslu eða stórframleiðslu sem þróunarlöndin ráða ekki við. Það gildir að vera sífellt skrefi á undan í framleiðslumagni, vísindum og tækni eða tísku. Hæpið er að treysta á það, að Íslendingar geti keppt með góðum árangri á þessum sviðum á næstunni, nema þar sem eitthvað alveg sérstakt kemur til. Hins vegar er líklegt að síðar meir verði nauðsynlegt að keppa í vaxandi mæli á þessum sviðum og því fari að verða tímabært að byrja að undirbúa jarðveginn undir það. Mestar líkur eru á því, að hægt sé að ná verulegum árangri á sviðum þar sem hægt er að styðjast við verðmætar innlendar auðlindir, staðsetningu landsins og sérstakar aðstæður af einhverju tagi. Þegar gjaldeyristekjurnar í dag eru skoðaðar staðfestist þetta, eins og allir sjá.“

Ég hef lesið hér upp langan kafla úr ræðu Sigurgeirs Jónssonar aðstoðarbankastjóra, sem er einn helsti sérfræðingur okkar í hagfræði og alþjóðaviðskiptum, til að staðfesta þau sjónarmið sem koma fram í grg. till. um nauðsyn þess að gerðar séu langtímaáætlanir á sviði rannsókna sem séu í samræmi við almenn markmið þjóðarinnar í atvinnumálum á hverjum tíma. Með langtímaáætlun þeirri, sem gerð hefur verið á vegum Rannsóknaráðs og lögð fram til umfjöllunar, er reynt að tengja rannsókna- og þróunarstarfsemina við vandamál og viðfangsefni atvinnuveganna og þjóðlífsins í heild á skýrari hátt en áður. Að baki áætluninni liggur mikið starf við könnun á aðstæðum og þróunarhorfum á þeim meginsviðum atvinnulífsins sem rannsóknastofnanir þjóna sérstaklega, þ. e. sjávarútvegi og fiskiðnaði, landbúnaði, almennum iðnaði og byggingariðnaði. Ætlunin er að sá háttur verði tekinn upp af hálfu Rannsóknaráðs ríkisins að gera langtímaáætlanir reglulega með tveggja til þriggja ára millibili til 5 ára í einu. Verða fulltrúar atvinnuveganna kallaðir til við undirbúning þeirrar áætlunargerðar. Síðan fjalli Alþ. um hverja áætlun og ræði um leið málefni rannsóknastarfseminnar í heild og þá ekki síst þau þjóðfélagslegu markmið sem henni skuli beint að á hverjum tíma. Niðurstöður af umfjöllun Alþingis verði í formi ályktunar um áætlunina. Einnig má ætla að við umfjöllun í n. og í umr. á þinginu komi fram gagnleg viðhorf og ný sjónarmið varðandi rannsóknastarfsemina og tengsl hennar við framtíðarhorfur í þjóðfélaginu.

Áður en ég vík að síðari þætti þessarar till., sem fjallar um fjárhags-, fjárlaga- og fjárveitingahliðina, langar mig til að nefna tvö atriði sérstaklega sem hafa ber í huga þegar rætt er um rannsókna- og þróunarstarfsemi atvinnuveganna. Annað atriðið snýr að því, hvar rannsóknirnar eigi að fara fram, og hitt varðar stjórnunarþáttinn. Að mínu áliti er afar mikilvægt að fyrirtækin í landinu stundi sjálf rannsóknastarfsemi og taki þannig virkan þátt í atvinnuþróuninni. Þetta hefur að sjálfsögðu alltaf verið gert og þarf ekki annað en rifja upp þróun fiskveiðitækninnar til staðfestingar. Rannsókna- og þróunarstarfsemi fyrirtækjanna þarf að auka og tengja við það starf sem fram fer í rannsóknastofnunum eða fræðslustofnunum. Með auknum rannsóknum fyrirtækjanna sjálfra dreifum við þekkingunni og þar með valdinu í þjóðfélaginu, styrkjum fyrirtækin og gerum þau sjálfstæðari. Jafnframt myndast aðhald að ríkisreknum rannsóknastofnunum. Fyrirkomulag eða staðsetning rannsóknastarfsins getur því orðið tæki til að brúa bilið og skapa þannig lífræn tengsl milli menntamanna annars vegar og atvinnulífsins hins vegar. Að þessum þætti þarf að huga betur í framtíðinni en gert hefur verið hingað til.

Þá vík ég að stjórnunarþættinum. Í II. kafla langtímaáætlunarinnar, sem Rannsóknaráð gaf út á s. l. ári, er fjallað um starfshætti við rannsóknir og þar segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Mönnum hefur lengi verið ljóst, að vísindi og tækni eru ein meginundirstaða hagvaxtar og velmegunar meðal þróaðra þjóða. Rannsóknir benda til þess, að á móti hlutdeild hinna þriggja hefðbundnu meginþátta framleiðslunnar: auðlinda, vinnu og fjármagns, í hagvexti og aukinni framleiðni sé tækniþróunin undirstaðan eða meira en 50% meðal hinna þróuðu þjóða.“ Það skal tekið fram, að þetta er úr danskri skýrslu um þessi mál. — „Af þessum sökum hefur mikið kapp verið lagt á eflingu vísindarannsókna, æðri menntunar og annarrar starfsemi sem talin er undirstaða tækniþróunar. Jafnframt hefur verið reynt að stuðla að flutningi tækni milli landa í þeim tilgangi að örva hagvöxt þeirra þjóða, sem vanþróaðar eru. Hafa verið uppi kenningar um að brúun hins svonefnda tæknibils milli þróaðra þjóða og vanþróaðra gæti dregið úr því efnahagslega misvægi sem ríkir þar á milli.“ — Sem innskot má minnast á það, að það er einmitt um þessa hluti sem verið er að fjalla og hefur verið fjallað í Parísarumræðunum sem kallaðar hafa verið á enskri tungu „the north south dialogue“. — „Athuganir á vegum OECD og fleiri aðila hafa þó leitt í ljós að vandamálið er ekki aðeins tæknilegs eðlis, heldur einnig og ekkí síður stjórnunarlegs og mannlegs eðlis. Möguleikar þjóða til að hagnýta sér þekkta tækni takmarkast þannig ekki síður af stjórnvisku og ýmsum mannlegum eða menningarlegum viðhorfum heldur en sjálfri tækniþekkingunni. Því er nú talað eins mikið um stjórnunarbil eða „management gap“ eins og tæknibil eða „technologicahgap“. Í þessu ljósi er öflug hagþróun ekki aðeins háð þeirri nýju tækni, sem lögð er fram eða flutt milli fyrirtækja og landa, heldur og ekki síður þeim stjórnunaraðferðum, sem beitt er við rekstur fyrirtækja og hagnýtingu tækninýjunga. Megininntak þeirrar stjórntækni, sem stuðlað hefur hvað mest að efnahagsvexti í þróuðum ríkjum, er viðleitni til að stýra vísvitandi ferli umbóta í ljósi breytilegra ytri og innri aðstæðna og halda markvisst uppi tilraunum til nýsköpunar á öllum sviðum. Þessi stjórnunarviðhorf eru í rauninni hvergi mikilvægari eða líklegri til árangurs en einmitt meðal þeirra, sem stunda rannsóknir og þróunarstörf, enda margar af grundvallaraðferðum nútíma stjórntækni orðnar til og mótaðar við störf að viðamiklum þróunarverkefnum um allan heim, ekki síst í Bandaríkjunum.“

Hér lýkur tilvitnun úr skýrslu Rannsóknaráðs. Fjölmargt fleira um starfsskipulag, nýsköpun og stefnu Rannsóknaráðs mætti leggja sérstaka áherslu á hér og þó einkum þá staðreynd, hvern óratíma það tekur að undirbúa ný atvinnutækifæri hér á landi í iðnaði, þegar ekki kemur til samstarf við erlenda aðila. Allt þetta verður að bíða betri tíma. En stjórnunarþáttinn valdi ég vegna þess að allt of oft gleymist að það er ekki nóg að kunna tökin á tækninni einni saman. Við megum ekki gleyma mannlegu þáttunum, samhæfingu þeirra innbyrðis og við tækniþekkinguna og þá ótrúlegu möguleika sem hún gefur.

Vilhjálmur Lúðvíksson, framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs, skrifaði nýlega skýrslu að lokinni för til nokkurra landa þar sem hann kynnti sér ástand og horfur í tækniþróunarmálum. Í skýrslunni segir Vilhjálmur, með leyfi forseta:

„Á undanförnum árum hefur orðið gerbreyting á þróunarferli iðnvæddra ríkja. Hinu mikla uppgangsskeiði fimmta og sjötta áratugsins er lokið og við hefur tekið tímabil mikilla sviptinga með hægari efnahagsvexti og jafnvel stöðnun og samdrætti hjá einstökum þjóðum, en svæðisbundnum og greinarbundnum erfiðleikum hjá öðrum. Afleiðingar þessara breytinga eru verðbólga og minnkandi arðsemi og aukið atvinnuleysi. Orsakir þessara breytinga eru aðrar og mun djúpstæðari en venjulegar viðskiptasveiflur vegna misvægis framboðs og eftirspurnar. Tengjast þær breytingum á grunngerð alþjóðlegrar framleiðslustarfsemi með röskun á hlutföllum í framleiðslukostnaði, breyttri verkaskiptingu milli þjóða og aukinni alþjóðlegri samkeppni í viðskiptum. Af helstu einstökum orsakavöldum má nefna:

1. Hraðfara iðnvæðing þjóða, sem áður voru í hópi vanþróaðra þjóða, samfara aukinni samkeppni við iðnvæddar þjóðir í mörgum hefðbundnum undirstöðugreinum iðnaðar, svo sem eins og járn- og stálskipasmíði, vefnaðar- og fataiðnaði og skógerð eins og ég áður nefndi, en þau lönd, sem stunda slíkan iðnað, eru lönd á borð við Hong-Kong, Suður-Kóreu, Taiwan, Spán, Brasilíu, Mexíkó, Singapore, Venezúela, Indónesíu og Saudi-Arabíu.

2. Stórfelld röskun á kostnaðarhlutföllum framleiðslu með hækkuðu verði á orku og hráefnum, misvægi í launakostnaði milli nýrri og eldri iðnaðarlanda.

3. Auknar kröfur í hinum eldri iðnaðarríkjum um verndun umhverfis, betri skilyrði á vinnustað og meiri lífsfyllingu í störfum, svo og verndun á rétti neytenda, sem að sjálfsögðu gerir framleiðsluna dýrari.

4. Tæknibreytingar, sem gert hafa mögulegar stórfelldar breytingar á framleiðsluháttum, svo sem rafeindabúnaður, tölvubúnaður, sjálfstýrikerfi o. s. frv., o. s. frv.“

Síðan fjallar Vilhjálmur í skýrslunni um endurmat á þróunarforsendum og ræðir iðnaðinn sérstaklega og stuðningsaðgerðir ríkisins við hann, bæði með almennum efnahagsráðstöfunum eða óbeinum aðgerðum og sértækum eða beinum aðgerðum. Og þá segir Vilhjálmur orðrétt, með leyfi forseta:

„Nýlegar athuganir sýna að árangur af stuðningsaðgerðum er mjög misjafn, og hafa þó oftast borið minnstan árangur í þeim greinum sem af grundvallarástæðum fara halloka, t. d. stórskipasmíðar, en hafa hins vegar gefist mjög vel í greinum sem hafa góðar vaxtaforsendur. Róttækar aðgerðir í ríkjandi greinum hafa þó leitt til jákvæðrar ummyndunar, oft með fækkun fyrirtækja og starfsliðs og nýjum áherslum á gæði og eðli vörutegunda. Á móti samdrætti í einstökum víkjandi greinum þurfa þá að koma önnur atvinnutækifæri og nauðsynlegt er að efla vaxtargreinar í því skyni. Vestur-Þýskaland hefur hvað mest beitt þeirri aðferð að veðja á vaxtargreinar og gefist vel. Svíþjóð hefur reynt að styðja víkjandi greinar, en ekki vaxandi greinar og lent í vandræðum. Þar er nú til umræðu að breyta um stefnu. Sama er að segja af reynslu Norðmanna. Á síðustu fjárl. Noregs var ákveðið að draga úr stuðningi við víkjandi greinar, en auka stuðning við nýsköpun og vaxtarhvetjandi aðgerðir í iðnaði almennt.“

Hér lýkur tilvitnun í þessa skýrslu Vilhjálms Lúðvíkssonar sem hann sendi framkvæmdanefnd Rannsóknaráðs. Þetta er dregið hér fram til að undirstrika nauðsyn þess, að við fylgjumst vel með hagþróuninni í nágrannalöndunum og vinnum markvisst að því að efla arðbærar greinar í stað þess að blóðmjólka þær, en göngum jafnframt hreint til verks að draga úr arðlausum greinum sem fullnægja ekki kröfum okkar til lífsgæða sem við óskum eftir.

Ég skal ekki, herra forseti, fjölyrða um síðari þátt ályktunartillögunnar, þann sem varðar fjárlagaundirbúninginn. Í framsöguræðu minni hér á hv. Alþ. fyrir þáltill. um núllgrunnsáætlanir svokallaðar rakti ég þær hugmyndir sem rutt hafa sér til rúms í fjárlagagerð á síðustu árum. Í stuttu máli má segja að horfið hafi verið eins og kostur er frá framlögum á stofnanagrundvelli yfir til fjárframlaga á verkefnagrundvelli. Ríkisstofnanir hafa tilhneigingu til að öðlast eilíft líf, en verkefnum er ætlaður takmarkaður tími. Þess vegna er aðhald fjárveitingavaldsins yfirleitt haldbetra þegar fjárveitingar byggjast á verkefnum. Hugmyndum Rannsóknaráðs er lýst í fjórum síðustu mgr. í grg. á þskj. 515, og ítarlegar umr. hafa farið fram um málið með þátttöku forstjóra Rannsóknastofnananna og fulltrúa úr viðkomandi rn. Ég geri ráð fyrir að hæstv. menntmrh. geri nokkra grein fyrir því máli hér í umr. á eftir.

Ég vil aðeins geta þess hér að lokum, að framkvæmdastjóri Rannsóknaráðs hefur þegar kynnt fjvn. málið og hlaut það góðar viðtökur n. f bókun 47. fundar fjvn., sem haldinn var 14. mars s. l., segir svo m. a., með leyfi forseta:

„Rannsóknaráð ríkisins. Vilhjálmur Lúðvíksson gerði grein fyrir skipulagi og verkaskiptingu stofnana á vegum ráðsins og ráðstillögunum til fjárl. og lagði hann fram gögn þar að lútandi. N. ályktaði að undirnefnd fylgdist með umsóknum Rannsóknastofnana atvinnuveganna vegna fjárl. 1980.“

Hér lýkur tilvitnun í fundargerðabók hv. fjvn. Alþingis. Í trausti þess, að þessi kynning, sem þegar hefur farið fram, flýti verulega fyrir málinu leyfi ég mér að vona, að ályktunartillagan fái afgreiðslu þingsins fyrir þinglausnir, og legg til að málinu verði vísað til fjvn. að lokinni fyrri umr.