10.05.1979
Efri deild: 95. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4592 í B-deild Alþingistíðinda. (3723)

296. mál, Fjárfestingarfélag Íslands

Flm. (Eyjólfur K. Jónsson):

Herra forseti. Mál þetta er einfalt í sniðum. Það er lagt til að skattfrelsi Fjárfestingarfélags Íslands, sem upphaflega var ákveðið að skyldi vera til ársloka 1977, verði framlengt og verði samfellt til ársloka 1982. Ég mun í örstuttu máli gera grein fyrir stefnu og störfum Fjárfestingarfélagsins.

Þess er fyrst að geta, að hlutafé félagsins er 83.7 millj. kr. og hluthafar eru þessir: Framkvæmdasjóður Íslands 20 millj., Iðnaðarbanki Íslands 7 millj., Iðnlánasjóður 7 millj., Lífeyrissjóður verksmiðjufólks 6 millj., Lífeyrissjóður verslunarmanna 15 millj., Verslunarbanki Íslands 5 millj., Samvinnubanki Íslands 5 millj., Samband ísl. samvinnufélaga 5 millj. og ýmis félög og einstaklingar 13,7 millj.

Eins og af þessari upptalningu sést eru allir eigendur félagsins aðrir en þessir síðast töldu skattfrjálsir aðilar, fjármálastofnanir og bankastofnanir, og félagið var sem sagt stofnað fyrst og fremst með stuðningi þessara stóru aðila. — Hins vegar var talið heppilegt og raunar nauðsynlegt að leyfa einstaklingum að vera aðilar að félaginu til að nýta starfskrafta þeirra, áhuga og hugmyndir. En Fjárfestingarfélagið var einmitt stofnað til þess að reyna ýmiss konar nýjungar í íslenskum atvinnumálum, t. d. svokölluð leigukaup, og hefur verið gert talsvert mikið að því. T. d. hafa verið keyptir margir lyftarar og fiskvinnsluvélar til þess að styrkja sjávarútveg, og þar að auki átti félagið að reyna að hafa frumkvæði að nýjum atvinnurekstri og einnig að koma upp vísi að verðbréfamarkaði, sem raunar hefur þegar verið gert og hefur borið nokkurn árangur.

Hins vegar hefur raunin orðið sú, að fjármunir félagsins að raunvirði hafa minnkað jafnt og þétt í hinni miklu verðbólgu því félagið á engar fasteignir eða verðtryggð skuldabréf sem hafa staðist þessa miklu verðbólgu. Þó að nokkur bókhaldslegur hagnaður hafi verið öll árin hefur hann hvergi nærri nægt til að vega upp á móti verðbólgunni og þess vegna er fyrirsjáanlegt að annað tveggja verður að gera: hreinlega að slíta félaginu eða að tryggja því skattfrelsi enn um sinn. Von forsvarsmanna félagsins er sú, að Alþ. vilji að tilraun þessari verði haldið áfram. Ef svo fer, sem allir hér inni hljóta að vona, að um síðir takist að ráða niðurlögum verðbólgu eða hægja á henni, þá verður auðvitað starfsvettvangur þessa félags allt annar en hann nú er og þá gæti það jafnvel lyft Grettistaki í okkar litla þjóðfélagi og komið fram nýjungum sem mikil nauðsyn er á, en annars mundi það sjálfsagt verða að hætta starfrækslu.

Ég legg svo til, herra forseti, að málinu verði vísað til fjh.- og viðskn.