10.05.1979
Efri deild: 95. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4593 í B-deild Alþingistíðinda. (3726)
283. mál, útvarpslög
Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Menntmn. hefur fjallað um þetta mál og leggur til að það verði samþ. Ég vil geta þess að tveir hv. nm. skrifa undir nál. með fyrirvara og einn hv. nm. Ragnhildur Helgadóttir, var fjarstödd afgreiðslu málsins.