10.05.1979
Efri deild: 95. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4596 í B-deild Alþingistíðinda. (3734)

70. mál, veðdeild Búnaðarbanka Íslands

Dómsmrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. 6. mál á dagskrá, á þskj. 76 og 597, er frv. til l. um veðdeild Búnaðarbanka Íslands. Í raun er það ekki mitt að mæla fyrir þessu máli því það var flutt í hv. Nd. af landbn. Þó þykir mér rétt að gera örstutta grein fyrir tilveru þessa máls.

Lögum um Stofnlánadeild landbúnaðarins var breytt á síðasta þingi. Í þeirri breytingu fólst m. a. að veðdeildin var losuð við það verkefni sem hún hafði áður, lánveitingar vegna jarðakaupa. Slíkt var fært yfir til Stofnlánadeildarinnar sjálfrar. Jafnframt var aukið framlag Stofnlánadeildar og fjárhagur hennar þannig styrktur.

Sú n., sem samdi það frv., gerði jafnframt ráð fyrir að gengið yrði svo frá málum veðdeildar Búnaðarbankans að framtíð veðdeildarinnar væri sæmilega trygg. Á veðdeildinni hvíla miklar skuldir og slíkar skuldir að veðdeildin stendur ekki undir þeim án sérstakra tekna, a. m. k. um nokkurra ára skeið. Sú n., sem samdi frv. sem varð að lögum um Stofnlánadeild landbúnaðarins, samdi einnig það frv. sem hér liggur fyrir. Það varð hins vegar aðskilja frá frv. um Stofnlánadeild og því ekki frá því gengið á síðasta þingi. Núv. ríkisstj. ákvað með tilliti til þess, að málið hafði verið undirbúið af fyrrv. hæstv. ríkisstj., að fara þess á leit við landbn. Nd. að hún flytti málið. Landbn. varð við þeirri ósk og því er málið flutt af nefnd.

Aðalatriði þessa frv. kemur raunar fram í 2. gr., þar sem gert er ráð fyrir.. að ríkissjóður Veiti árlegt framlag sem nemur 25 millj. kr. til ársloka 1985 og Stofnlánadeild Landbúnaðarins 35 millj. kr. til ársloka 1985 og þessar tekjur hafi deildin auk vaxtatekna til að rétta svo við sinn hag að í lag verði komið að þessum tíma liðnum, þ. e. 1985. Með málinu frá nefndarinnar hálfu fylgdi ítarleg úttekt sem sýnir að með þessu móti sé fjárhagur deildarinnar tryggður.

Þessum upplýsingum sýndist mér rétt að koma á framfæri við 1. umr. um þetta mál, og ég leyfi mér jafnframt að leggja til, þótt ég flytji málið ekki, að að lokinni þessari umr. verði því vísað til 2. umr. og hv. landbn.