10.05.1979
Efri deild: 95. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4597 í B-deild Alþingistíðinda. (3736)

92. mál, almannatryggingar

Helgi F. Seljan:

Herra forseti. Ég taldi rétt við 1. umr. að gera deildinni litla grein fyrir þessu máli, að það hafi nú legið alllengi á borðum þm. Það var flutt í Nd. sem þmfrv. eða kannske öllu heldur að hluta til af heilbr.- og trn. í Nd., sem afgreiddi það svo frá sér nú fyrir skömmu. Það hefur gengið í gegnum Nd. Ég er kunnugur þessu máli frá fyrri tíð. Það, sem hér er um að ræða, er, eins og segir í 1. gr. frv., að á eftir h-lið 39. gr. tryggingalaga komi nýr stafliður er orðist svo:

„Að greiða kostnað skv. nánari ákvörðun tryggingaráðs, vegna psoriasissjúklinga, sem að mati sérfræðinga þurfa að leita læknishjálpar á meðferðarstofnunum psoriasissjúklinga erlendis sem komi í stað sjúkrahúsvistar.

Tryggingaráð setur nánari reglur um greiðslufyrirkomulag og skipulag slíkra ferða, auk hámarksfjölda psoriasissjúklinga sem árlega geti notið slíkrar fyrirgreiðslu.“

Þetta er sem sagt það efni sem frv. fjallar um. Það var öðruvísi orðað, tók nokkrum breytingum í meðferð n. í Nd., því að þar vildu menn ekki hafa það eins frjálslegt og var í upphafi. Mér var það löngu orðið ljóst af dæmum sem ég hafði um þessa sjúklinga úr mínu næsta nágrenni, að það var ekki hægt að bera saman þá rándýru sjúkrahúsvist, sem þeir tveir sjúklingar, sem ég kannaðist þar við, nutu þó á ári hverju, við það að þessir sömu sjúklingar fóru út á sólarstrendur og voru þar tiltölulega stuttan tíma á tveggja ára fresti. Ég kannaði þá hjá tryggingunum hvort það væri nokkur möguleiki á því að þarna yrði um einhvers konar ferðakostnaðargreiðslu að ræða, því að að öðrum kosti yrðu þessir sjúklingar, a. m. k. í þessum tveimur tilfellum, örugglega að liggja á sjúkrahúsum og gerðu það árlega. Í grg. fyrir þessu frv. segir að daggjald á sjúkrahúsi fyrir þessa sjúklinga sé um 30–35 þús. kr. á dag og því megi ætla að hér sé ekki um minni kostnað vegna sjúkrahúsvistar þeirra að ræða, ef þessum sjúkdómi er þannig haldið í skefjum, en 70–100 millj. kr. á ári.

Nú hafa menn eðlilega haft ýmislegt við þetta að athuga og talið að þarna væri um hættulega leið að ræða, misnotkun væri mjög auðveld og annað eftir því. Það höfum við reyndar oft heyrt í sambandi við þær breytingar sem hafa verið gerðar á almannatryggingalögum, og við skulum gera okkur grein fyrir því, að víða er þar um misnotkun að ræða. En ég hygg að með þeirri breytingu, sem hefur orðið á þessu frv. í Nd., hafi tekist að girða að mestu — auðvitað aldrei að öllu frekar en um aðrar greinar — girða að mestu fyrir þá misnotkunarhættu sem menn hafa sett hér mest á oddinn.

Það hefur verið talað um að fleiri fylgdu þarna á eftir, kæmu í kjölfarið og mundu reyna að njóta sömu kjara ef af þessum hlunnindum yrði. Um það skal ég ekki dæma. Það kann vel að vera að einhverjir fleiri komi þarna til og þá um miklu fjölmennari sjúklingahópa að ræða en þarna er gert ráð fyrir, því eins og segir í grg. með þessu frv. er talið að um 50–70 psoriasissjúklingar séu haldnir þessum sjúkdómi á svo háu stigi að þeir þurfi að vera reglulega í meðferð á húðsjúkdómadeild Landsspítalans og þurfi að dveljast þar 3–5 vikur í einu og sumir oftar en einu sinni á árin.

Ég veit ekki hversu mönnum þykir þetta réttmætt í raun og hversu mönnum þykir hér út á hæpna braut farið, eins og ég hef margoft heyrt. En hitt veit ég, vegna þess að ég hef haft afskipti af málum þessara tveggja sjúklinga, að eftir að foreldrarnir komust yfir það að geta lagt í þann kostnað að fara með þessi börn til sólarlanda þá varð slík gerbreyting á ástandi þessara sjúklinga að ég hefði ekki að óreyndu trúað því. Ég vissi að þessir sjúklingar höfðu farið árlega hingað suður á Landsspítala, annar þeirra tvisvar á ári, og gengist þar undir meðferð sem ég efast ekki um að hafi verið eins samviskusamlega af hendi leyst og mögulegt var, en allt sótt í sama horfið og áður eftir mjög stuttan tíma. Ég sem sagt lýsi yfir að ég hlýt að styðja þetta mál af þeirri persónulegri reynslu sem ég hef af þessu máli. Ég veit að þetta á hinn fyllsta rétt á sér gagnvart þeim sjúklingum sem ég þekki til, og ég efast ekki um að svo sé um aðra þá sjúklinga sem þarna eru sérstaklega upp taldir. Það er líka rétt að geta um það sem segir síðast í grg., að lög um slíka styrki til psoriasissjúklinga hafa verið samþ. í Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi.

Tryggingaráð á svo eftir að setja nánari reglur um greiðslufyrirkomulag og skipulag slíkra ferða, auk hámarksfjölda psoriasissjúklinga sem árlega geti notið slíkrar fyrirgreiðslu, svo að fyrir þá misnotkunarhættu, sem mest hefur verið talað um, og annað, sem þar fylgdi í kjölfarið, held ég að sé furðuvel girt með þessum hætti, þó að mönnum hafi eflaust sýnst í upphafi, þegar þeir sáu þetta frv., að nóg væri sólarlandaæði Íslendinga þó ekki væri farið að bæta þessu ofan á og tryggingarnar færu að taka þetta að sér í ofanálag. En málið er bara öðruvísi og ég treysti bæði þeim, sem að þessum samtökum standa, og eins þeim læknum, sem ég hef rætt við um þetta, til þess að bera þarna á skynbragð, auk þess sem ég hef sjálfur séð þess ljós dæmi að hér getur verið um gerbreytingu að ræða og beri að styrkja þetta í stað þess að eyða í það stórfé hér innanlands með miklu minni árangri.