10.05.1979
Efri deild: 95. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4600 í B-deild Alþingistíðinda. (3742)
247. mál, Rafmagnseftirlit ríkisins
Frsm. (Ólafur Ragnar Grímsson):
Herra forseti. Það er mikill misskilningur hjá hv. þm. Þorv. Garðari Kristjánssyni, að sú skattagleði, sem hann telur að ríki í herbúðum stjórnarsinna, eigi einhvern þátt í þessu frv. Þetta frv. er af allt öðru tagi. Hér eru fyrst og fremst á ferðinni breytingar á mjög mikilvægri þjónustustarfsemi og eftirlitsstarfsemi í landinu og miðað er við að sú starfsemi standi undir sér miðað við þær tekjur sem þarna eru ákveðnar. Það má vel vera að erfitt sé að meta nákvæmlega hvað þurfi til þess að standa undir þessum rekstri. Það er þó nokkur breyting á því mati sem fólgin er í þeim brtt. sem ég hef flutt. Ég tel, að það sé erfitt að meta það nákvæmar en þarna er gert, og vil þess vegna styðja, eins og ég hef flutt hér brtt. um, að þetta verði 1.2%. Ef það kemur í ljós, sem hv. þm. Þorv. Garðar fullyrðir hér, að þetta dugi ríflega, þá get ég út af fyrir sig verið honum sammála um það síðar, þegar að því kemur, að það megi endurskoða þetta. En meðan svo er ekki tel ég réttara að hafa vaðið fyrir neðan sig í þessum efnum og gera á þessu þær breytingar, sem ég hef gert till. um, af þeim ástæðum sem ég rakti fyrr í ræðu minni. Að rugla þessu saman við þá skattagleði, sem ríkt hefur í okkar herbúðum, er mikill misskilningur. Við erum miklu stórtækari á því sviði þegar við á annað borð förum af stað.