10.05.1979
Neðri deild: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4617 í B-deild Alþingistíðinda. (3759)

270. mál, aðstoð við þroskahefta

Matthías Á. Mathiesen:

Herra forseti. Ég skal ekki tefja umr. þessa máls. En ég tel að það geti ekki farið eftir samkomulagi ráðh. hvernig vinnubrögðum er háttað á Alþ. Ég held að með tilliti til þingskapa og þeirra starfa, sem við hér vinnum, hljóti mál, sem fjalla um útgjöld ríkissjóðs upp á 1 milljarð, að fara til fjh.- og viðskn. til umfjöllunar. Ég kannast ekki við að frv. með slíkum útgjöldum sem þessum hafi ekki þangað farið.

Hæstv. fjmrh. vék að þessu áðan og taldi sig ekki geta flutt till. öðruvísi en hæstv. félmrh. féllist á það. Ég er reiðubúinn að flytja þá till., þar sem ég tel það eðlilegt og rétt og að þm. eigi ekki að vinna störf sín hér samkv. samkomulagi við ráðh., heldur samkv. þeim reglum og þeim venjum, sem hér hafa gilt, og því, sem eðlilegt er samkv. þeim málum sem hér eru til umfjöllunar. Ég legg því til, að þessu máli verði vísað til fjh.- og viðskn., og vonast til að sú n. taki málið til afgreiðslu og vinni að því með þeim hraða sem mögulegt er.