10.05.1979
Neðri deild: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4618 í B-deild Alþingistíðinda. (3762)
270. mál, aðstoð við þroskahefta
Matthías Á. Mathiesen:
Herra forseti. Ég hafði ekki beðið forseta um neinn úrskurð í þessu máli, sem mér virtist hann þó kveða upp áðan. Ég get sagt honum að ég lagði fram till. um, að þessu máli yrði vísað til fjh.- og viðskn., einfaldlega til þess að hann slyppi við að kveða upp úrskurð og d. kvæði sjálf á um hvort málið færi til fjh.- og viðskn. eða til félmn., eins og hæstv. félmrh. hafði lagt til. Ég get hins vegar ekki fallist á þau rök, sem forseti d. bar fram vegna þeirrar till. sem ég flutti, og tel mig hafa rök fyrir því, en sé ekki ástæðu til að ræða þau. En ég hef lagt fram till., hæstv. félmrh. hefur lagt fram till. og eins og hv. 1. þm. Austurl. kom með sem aths. hlýtur d. að kveða á um hvert hún sendir þetta mál til skoðunar. Að málið geti ekki farið til fjh.- og viðskn. þessarar d. vegna þess hvar það var í n. í Ed. er ekki heldur skýring. Málið var flutt í hv. Ed. án þess að í því væru ákvæði um útgjöld upp á 1 milljarð. Það er félmn. Ed. sem flytur brtt. við frv. þar. Frv. breytist í meðförum Ed. og þegar það kemur hingað til Nd. skiptir það svo miklu útgjöld ríkissjóðs að að mínum dómi er ekkert annað eðlilegt en fjh.- og viðskn. fjalli um málið í þessari deild.