10.05.1979
Neðri deild: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4622 í B-deild Alþingistíðinda. (3772)
226. mál, veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. sjútvn. að beiðni frsm., hv. þm. Sighvats Björgvinssonar, í fjarveru hans.
Þetta litla frv. fjallar um heimildir til handa smábátum minni en 20 m að lengd að stunda dragnótaveiðar á tveimur litlum svæðum fyrir Vestfjörðum. Ég vil geta þess, að það er mál þeirra, sem gerst til þekkja, að skarkolastofn okkar þoli miklu meiri veiði en nú er, og fyrir því er það að vísindamenn á þessu sviði hafa mælt með frv. og samþykkt þess.
Breytingin, sem n. gerir á frv., er að nema á brott, þar sem lagt var til að leyft yrði að veiða með botnvörpu og flotvörpu, orðið „flotvarpa“ sem ekki þótti ástæða til að þarna stæði.
N. hefur rætt málið á nokkrum fundum sínum og eins og ég sagði haft um það samráð við fiskifræðinga og þeir tjáð samþykki sitt við þessari lagabreytingu. N. hefur orðið sammála um afgreiðsluna, en hv. þm. Garðar Sigurðsson skrifaði undir nál. með fyrirvara og hefur enda borið fram brtt. við frv. sem hann dregur til baka til 3. umr. Ég hygg að ég megi fullyrða að samkomulag sé orðið um þá brtt., sem hann mun flytja við 3. umr., og fyrir því er það, herra forseti, að ég óska eftir að 2. umr. verði nú lokið og atkvgr. þannig að frv. megi ganga til 3. umr., og þá væntanlega verður gengið um leið frá því samkomulagi sem ég hygg að hafi náðst við hv. þm. Garðar Sigurðsson með tilliti til þeirrar brtt. sem hann hefur flutt við frv.