10.05.1979
Neðri deild: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4632 í B-deild Alþingistíðinda. (3777)

151. mál, framhaldsskólar

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Í tilefni af fréttaflutningi hv. þm. Ólafs G. Einarssonar áðan af þingflokksfundi Alþfl., þar sem hann lýsti því yfir að þar hefði sú samþykkt verið gerð að tefja fyrir framgangi þessa frv., vil ég koma honum og öðrum þm. í skilning um að engin slík samþykkt hefur verið gerð í þingflokki Alþfl. Það, sem gerðist við umr. um þetta frv. í þingflokknum og ég tel rétt að skýra frá, er að þegar málið var fyrst lagt fram í þingflokknum var gerð aths. við það að ekki fylgdi kostnaðaráætlun. Bent var á að í lögum um stjórn efnahagsmála o. fl., sem nýlega voru samþ. hér á þingi, segir í 13. gr., með leyfi hæstv. forseta:

“Fjárlaga- og hagsýslustofnun skal annast hagsýslustarfsemi fyrir ríkisbúskapinn í því skyni að auka á hagkvæmni og ráðdeild í ríkisbúskapnum og í meðferð opinberra fjármuna.

Meðal þess háttar verkefna fjárlaga- og hagsýslustofnunar skulu vera, eftir því sem nánar verður ákveðið í reglugerð.“ Og síðan kemur liður 2: „Kostnaðarmat á tillögum frv. sem hafa í för með sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð. Skal slíkt mat liggja fyrir áður en ákvarðanir eru teknar, enda sé því skilað til þingnefndar á tilskildum tíma.“

Það var eðlilega gagnrýnt að slíkt kostnaðarmat lá ekki fyrir. Þingflokkurinn fékk síðar í hendur kostnaðaráætlun. Að vísu er erfitt að meta frv. af þessu tagi til kostnaðar, eins og hæstv. menntmrh. hefur réttilega bent á. Þó var hægt að meta verknámsþáttinn á rösklega 2 milljarða kr. Þessar upplýsingar taldi þingflokkur Alþfl. nægjanlegar. En því er ekki að leyna, að raddir heyrðust um að ekki væri endilega nauðsynlegt að afgreiða frv. á þessu þingi, það gæti beðið næsta þings.

Alþfl. gerði sér far um að kynnast á tiltölulega skömmum tíma innihaldi frv. og þá einkum og sér í lagi grg. sem er um 200 bls. — frv. sjálft er eitthvað um 20 bls. og varla það. Þingflokkurinn fékk á sinn fund skólamenn svo og fulltrúa menntmrn., og ég leyfi mér að fullyrða að hann hafi gert sér meira far um en kannske þingflokkur Sjálfstfl. að kynna sér þetta mál frá sérfróðum mönnum.

Efnislega fer ég ekki að ræða þetta frv., svo mikið hefur verið um það sagt. Hins vegar hlýtur öllum að vera ljóst að þau grunnskólalög, sem nú eru í gildi, knýja mjög fast á um að frv. verði samþ., og þingflokkur Alþfl. mun styðja það.

Ég tel að þær breytingar sem mikilverðastar eru í þessu frv., séu þær, að það felur í sér jafnrétti verknáms á við bóknám. Var tími til kominn að menn færu að meta verknám einhvers hér á landi og hætta framleiðslu á lögfræðingum og viðskiptafræðingum, — offramleiðslu, ef ég mætti orða það þannig. Sú stétt er vissulega nauðsynleg og góð, en ég held að meiri gaum mætti gefa verknámshlið málsins.