10.05.1979
Neðri deild: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4635 í B-deild Alþingistíðinda. (3782)

238. mál, námsgagnastofnun

Friðrik Sophusson:

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðh. hólið, þ. e. a. s. að ég eigi mér háleitar hugsjónir, en verð að hryggja hann sömuleiðis með því, að það get ég ekki sagt um hann.

Það er alveg rétt hjá hæstv. ráðh., að ýmsir sjálfstæðismenn hafa reynt að leita nýrra leiða varðandi rekstur hér á landi, reynt að átta sig á hvort ekki sé hugsanlegt að breyta til, reynt að átta sig á hvort hlutirnir, eins og þeir gerast nú, gætu ekki verið öðruvísi, hvort ekki sé kominn tími til þess að hugsa sem svo: Nú er kreppan liðin, nú lifir hér bjargálna fólk, — fólk sem jafnvel hefur gott af að borga fyrir þá þjónustu sem það fær, — og þá má kanna hvort slíkt getur ekki veitt aðhald og komið ábyrgð fyrir hjá sem flestum einstaklingum í þjóðfélaginu. — Það var á slíkum grunni sem ég leyfði mér á þessu stigi málsins að benda á hvort ekki væri ástæða til að kynna sér viðhorf fleiri aðila en þeirra sem þarna eiga í hlut. Ekki var farið fram á annað en að kynna sér hvort hugsanlegt væri að aðilar eða stofnanir og fyrirtæki, sem eru starfrækt fyrir í landinu, gætu tekið yfir ákveðinn hluta þess sem þarna er um að ræða, ekki þó þannig að sjálfsögðu að þeir ættu einir að stjórna hvað kæmi út, heldur gætu þeir tekið að sér t. d. ákveðna bókaútgáfu. Það væri áreiðanlega hægt að finna leið til að koma þessum verkefnum meira frá Ríkisútgáfu námsbóka.

Þá er komið að því, hvort ekki sé ástæða til að fara að selja námsbækur í grunnskólum, í skyldunáminu. Ég skal hreinlega viðurkenna að það hefur hvarflað að mér að slíkt kæmi til greina. Ég er hræddur um að virðing Íslendinga fyrir ýmsum verðmætum sé lítil einmitt vegna þess að fólk telur, að hægt sé að fara með hluti eins og drasl af því að þeir eru afhentir af ríkisvaldinu, og fólk hefur enga tilfinningu fyrir því hvað slíkir hlutir raunverulega kosta. Ég er þeirrar skoðunar, að kominn sé tími til að sá einstaklingur, sem er í skóla, fái að vita hvað skólaveran kostar íslensku þjóðina. Og ég er einn af þeim sem trúa því, að hollt gæti verið fyrir ýmsar fjölskyldur hér á landi að átta sig á hver sá kostnaður er sem samfélagið greiðir fyrir börn í skólum á skyldunámsstigi. Þetta er ekki gert til þess að niðurlægja einn eða annan. Þetta er ekki heldur hugsað til þess að koma í veg fyrir að einhver afli sér menntunar. Þetta er gert til þess að fólk í landinu átti sig á að þetta kostar peninga og þeir eru greiddir af íslenskum skattborgurum. Það eru einmitt slíkar hugsanir sem liggja til grundvallar því að sjálfstæðismenn, og þá sérstaklega yngri sjálfstæðismenn, hafa reynt að átta sig á þessu: Er ekki hægt að breyta hér einhverju, er ekki hægt að koma á einhverju öðru kerfi, er ekki hægt að haga málum eitthvað öðruvísi þannig að við fáum betri nýtingu útgjaldanna? Við höfum ekki eingöngu spurt hvort við gætum gert hlutina betur, framkvæmt betur það sem fyrir er. Við höfum jafnvel leyft okkur að spyrja hvort ekki sé ástæða til þess að gera annað, hreinlega að leggja niður stofnanir, eins og hæstv. ráðh. minntist á.

Ég var hógvær í hinni stuttu ræðu minni áðan, einfaldlega vegna þess að ég átti ekki von á að þetta frv. ætti að samþykkja á þinginu núna. En mér kom sannarlega á óvart að hæstv. ráðh. skyldi taka það illa upp, þegar á var bent að kannske þyrfti að athuga hvort hægt væri að koma þessu máli öðruvísi fyrir. Sá var tilgangurinn.

Ég vil ítreka þakkir mínar til hæstv. ráðh. fyrir að kalla mig háleitan hugsjónamann, ég vona að það eigum við ungir sjálfstæðismenn skilið. En það hryggir mig, og það ítreka ég, að slíkt get ég ekki sagt um hann.