10.05.1979
Neðri deild: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4639 í B-deild Alþingistíðinda. (3790)

190. mál, ráðstafanir vegna lánsfjáráætlunar 1979

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég leyfi mér að þakka hv. fjh.- og viðskn. og hæstv. fjmrh. fyrir góðar undirtektir við hinni litlu brtt. minni við 20. gr. frv., er varðar Ferðamálaráð. Till. mín er ekki margorð, en ég veit að afstaða fjh.- og viðskn. og hæstv. fjmrh. til hennar er vel metin af ferðamálaráðsmönnum.