10.05.1979
Neðri deild: 84. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4643 í B-deild Alþingistíðinda. (3802)
190. mál, ráðstafanir vegna lánsfjáráætlunar 1979
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Eftir að lánsfjáráætlun hefur verið þæfð hér mánuðum saman er heldur ódensilegt að hlýða á hv. stjórnarþm. með ráðh. í broddi fylkingar tala í austur og vestur um hina þýðingarmestu þætti þeirrar áætlunar. Ég er heldur daufur við að fylgja hækkunartill., en ég tók rétt eftir því í máli hæstv. fjmrh. að hann kvaðst mundu vilja beita sér fyrir að þetta lán yrði yfirtekið alveg af ríkissjóði við afgreiðslu næstu lánsfjáráætlunar. Það er vissara að taka þessa ákvörðun strax, enda sé ég ekki mikinn mun á því, því að guð má vita hvar hann dansar næstu jól. Ég segi því já.