11.05.1979
Efri deild: 97. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4658 í B-deild Alþingistíðinda. (3829)

267. mál, stofnun og slit hjúskapar

Dómsmrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Á þetta frv. má líta sem fylgifrv. með því frv. sem ég lagði fram í þessari hv. d. um lækkun lögræðisaldurs úr 20 árum í 18 ár. Ég gerði þá grein fyrir því, að ýmis slík ákvæði í lögum þyrfti að endurskoða. Hér er einnig lagt fram frv. um lækkun á aldursmörkum og heimild til að stofna og slíta hjúskap verði bundin við 18 ár í stað 20 ára. Fyrrnefnt frv. um lögræði hefur þegar verið afgreitt sem lög frá Alþingi. Ákveðið var að leggja þetta frv. fram nú þegar sýnt var að hitt mundi hljóta afgreiðslu. Ég þarf út af fyrir sig ekki að hafa um málið fleiri orð, en vil þó geta þess, að fleiri slík ákvæði eru í athugun. T. d. er nauðsynlegt að athuga kosningaraldur, sem töluvert hefur verið um rætt, og fleira mætti nefna.

Ég vil leggja til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. allshn.