11.05.1979
Efri deild: 97. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4661 í B-deild Alþingistíðinda. (3834)
177. mál, húsaleigusamningar
Félmrh. (Magnús H. Magnússon):
Herra forseti. Ég get með mjög góðu móti fallist á allar brtt. hv. félmn. á þskj. 657. Að mínu mati standa þær flestar til bóta og engin þeirra er til skaða. Aftur á móti get ég ekki fallist á till. hv. þm. Ólafs Ragnars Grímssonar á þskj. 658 og tel þá brtt. óþarfa og til þess fallna að gera mál flóknari og þyngri í vöfum en ella þyrfti að vera.
Sveitarstjórnir eiga samkv. frv. að sjá til þess að úttektarmenn séu dómkvaddir. Leiðbeiningar um ágreiningsefni og sáttaumleitanir eru samkv. frv. verkefni úttektarmanna og leigumiðlara ef svo ber undir. Meginatriðin, sem varða réttindi manna, munu koma fram á því húsaleigusamningsformi sem út verður gefið. Menn eiga þannig að geta gengið að því nokkurn veginn svört á hvítu hver réttindi þeirra eru, a. m. k. í öllum aðalatriðum.
Hér er vissulega um allflókið mál að ræða og stórt og reyndar nýsmíði í íslenskri löggjöf og því er eðlilegt að nokkur dráttur hafi orðið á afgreiðslu þess í n. Mér finnst sá dráttur samt fullmikill og er þá kannske með samanburð við geysifljóta afgreiðslu þessara sömu hv. n. á frv. um aðstoð við þroskahefta. Ég endurtek þakklæti mitt fyrir hve vel var þar að unnið. Þó að þetta frv. sé orðið nokkuð seint á ferðinni vona ég í lengstu lög að takist að fá það gert að lögum á þessu þingi.