11.05.1979
Efri deild: 97. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4664 í B-deild Alþingistíðinda. (3839)
190. mál, ráðstafanir vegna lánsfjáráætlunar 1979
Fjmrh. (Tómas Árnason):
Herra forseti. Hinn 1. febr. s. l. var fjárfestingar- og lánsfjáráætlun ríkisstj. samþ. á ríkisstjórnarfundi. Áætlunin var síðan lögð fram á Alþ. 21. febr. og ég talaði fyrir henni í Nd. Alþ. 28. febr. Síðan hefur málið verið að velkjast í Nd., lengst í fjh.- og viðskn., þar til í gær, 10. maí, að það var loks afgreitt frá d. Ég hef alla tíð lagt áherslu á að málinu yrði hraðað og vonast til að það eigi greiða leið um hv. Ed. Af ástæðum, sem óþarfi er að fjölyrða um, er orðin mikil nauðsyn á að afgreiða málið. Seinkun þess er farin að valda truflunum í atvinnulífinu, sérstaklega iðnaðinum. Þetta verkar eins og stífla á fjármagn, sem þarf að beina til uppbyggingar, og er farið að valda verulegum truflunum. Er málið satt best að segja að komast á nokkuð hættulegt stig, ef það verður ekki afgreitt sem allra fyrst.
Jafnhliða skýrslu ríkisstj. um fjárfestingar- og, lánsfjáráætlun er flutt frv. til l. um heimild til lántöku, ábyrgðarheimildir og aðrar ráðstafanir vegna fjárfestingar- og lánsfjáráætlunar 1979. Frv. var lagt fram sem 190. mál á þskj. 364. Tilgangur frv. er að gefa lánsfjáráætluninni og fjárfestingaráformunum, sem hún lýsir, meiri festu. Efni frv. er tvíþætt. Annars vegar fjallar það um ráðstafanir á innlenda lánamarkaðinum til þess að tryggja fjáröflun fjárfestingarlánasjóða. Hins vegar felur frv. í sér heildaráætlun um lántökur erlendis til allra opinberra framkvæmda, hvort sem er á vegum ríkisins eða sveitarfélaga, og til fjárfestingarlánasjóða. Fram úr þeirri áætlun má helst ekki fara á þessu ári ef taksast á að lækka skuldir þjóðarinnar út á við á næstu árum.
Ég mun hér á eftir gera nánari grein fyrir þessu frv., sem kalla mætti frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1979 þar sem það ákveður hvernig afla skuli lánsfjár til opinberra þarfa á þessu ári. Hér er um að ræða mikilvæga fjárráðstöfun sem rík ástæða er til að löggjafinn fjalli vandlega um.
Í lögum um stjórn efnahagsmála o. fl. eru sérstök ákvæði um fjárfestingar- og lánsfjáráætlun ríkisstj. Þar er t. d. lagt til að ríkisstj. leggi fyrir Alþ. fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir eitt ár í senn og hún skuli fylgja fjárlagafrv. Markmið slíkrar áætlunar á samkv. lögunum að vera að tryggja að heildarumsvif í fjárfestingu og þróun peningamála og lánamála samrýmist þjóðhagslegum markmiðum og fjármagni sé beint til þeirra framkvæmda sem skila mestum arði í þjóðarbúið. Að sjálfsögðu ber ætíð að taka ríkt tillit til félagslegra sjónarmiða. Þá eru mörg ákvæði í lögunum um áætlunina, bæði undirbúning hennar og meðferð svo og hvað í henni skuli felast. Ég álít að þessi nýsettu lög verði til mikilla bóta í hagstjórn þótt þau leysi vissulega ekki allan vanda okkar í efnahagsmálum, því fer fjarri.
Ég vík hér sérstaklega að ákvæðunum um fjárfestingar- og lánsfjáráætlun, þar sem ég er nú að ræða um þau mál.
Við 1. umr. málsins í Nd. flutti ég ítarlega framsöguræðu um fjárfestingar- og lánsfjáráætlunina. Þeirri ræðu var þá þegar útbýtt til allra hv. þm. Enn fremur var lögð fram á Alþ. skýrsla ríkisstj. um fjárfestingar- og lánsfjáráætlun 1979. Án þess að endurtaka nema örlítið af því, sem fram kemur í þeirri skýrslu og framsöguræðu minni í Nd., vil ég aðeins minna á þá heildarstefnu sem fram kemur í skýrslunni.
Samkv. fjárfestingar- og lánsfjáráætlun verður heildarfjárfestingin í landinu innan við einn fjórða af þjóðarframleiðslu árið 1979. Ef þetta er borið saman við s. l. ár var heildarfjárfestingin 26–27% af þjóðarframleiðslu árið 1978, 28.5% árið 1977 og um 30% árið 1976. Áætluð fjárfesting á árinu 1979 nemur samkv. áætluninni 182 milljörðum kr. sem skiptist þannig, að fjárfesting atvinnuveganna nemur um 79 milljörðum kr., íbúðabyggingar nema 44 milljörðum kr. og opinberar framkvæmdir 59 milljörðum kr. Hér er um að ræða að draga heldur úr fjárfestingunni til að minnka spennuna í efnahagsmálum og reyna á þann hátt að draga úr verðbólgunni án þess þó að samdrátturinn leiði til atvinnuleysis. Ég vil vekja athygli á að þessi meginstefna og rökstuðningur fyrir henni hefur ekki sætt gagnrýni af hálfu stjórnarstöðunnar.
Í áætluninni er gert ráð fyrir að erlendar lántökur verði takmarkaðar við 39.5 milljarða kr. á þessu ári og miðist við að mæta afborgunum erlendra lána og nauðsyn þess að bæta gjaldeyrisstöðuna. Á þessu ári og næstu árum er nauðsynlegt að greiða niður að verulegu leyti gjaldeyrislán sem Ísland fékk hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum á erfiðleikaárunum 1974 og 1975. Brýnt er að þau lán verði greidd nú þegar bærilegar árar til þess að eiga á ný aðgang að þeim þegar á móti kann að blása. Lántökur á næstu árum verður að miða við að greiðslubyrði erlendra lána fari ekki upp fyrir 14–15% af gjaldeyristekjum og verði þó helst lægri til jafnaðar.
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstj, er lögð á það áhersla, að stefnt verði að jöfnuði í viðskiptum við útlönd og dregið verði út erlendum lántökum. S. l. fjögur ár hefur greiðslubyrði afborgana og vaxta af löngum erlendum lánum verið á þessa leið í hlutfalli við útflutningstekjur: Árið 1978 nálægt 13.7%, árið 1977 sömuleiðis 13.7%, árið 1976 13.8% og árið 1975 14.2%. Árið 1979 er greiðslubyrðin áætluð innan við 14%. Á árinu 1979 munu áætlaðar nettólántökur nema 4% af útflutningstekjum og 1.8% af vergri þjóðarframleiðslu, en samsvarandi tölur fyrir árið 1978 eru 4.2% í stað 4% og 2.2% í stað 1.8%. Þannig er hér stefnt að því að draga úr áætluðum nettólántökum.
Að öðru leyti sé ég ekki ástæðu til að rekja nánar úr framsögu minni í Nd. né úr skýrslunni, en vísa til hvors tveggja, bæði framsöguræðunnar í Nd. og skýrslunnar sjálfrar.
Ég mun víkja að að einstökum greinum frv. á þskj. 364, sem ég er raunverulega að mæla fyrir.
1. gr. frv. fjallar um að fjmrh. sé heimilt f. h. ríkissjóðs að taka lán á árinu 1979 allt að 9295 millj. kr. eða jafnvirði þeirrar upphæðar í erlendri mynt.
2. gr. fjallar um að lánsfé samkv. 1. gr. skuli ráðstafað í samræmi við ákvæði fjárlaga og fjárfestingar- og lánsfjáráætlunar fyrir árið 1979.
Það var gerð breyting í Nd. sem var viðbót við 2. gr., svo hljóðandi:
„Þó skal ríkissjóður standa að fullu undir afborgunum, vöxtum og öðrum kostnaði við 600 millj. kr. lántöku vegna skuldagreiðslna RARIK.“
Kveðið er á um í skýrslunni um lánsfjáráætlunina að tekið skuli 600 millj. kr. lán til handa Rafmagnsveitum ríkisins og ríkissjóður endurgreiði það lán á næstu fimm árum, en með þeirri brtt., sem samþ. var í Nd., er gert ráð fyrir að ríkissjóður standi einnig undir vöxtum af því láni. Í því er fólgin breytingin á 2. gr. sem samþ. var í Nd.
3. gr. fjallar svo um lífeyrissjóðina. Það hefur verið talsvert deilumál um lífeyríssjóðina. Þeir hafa viljað ráðstafa fé sínu sem mest sjálfir. En þeir, sem standa að því að reyna að safna saman fjármunum til þess að standa undir nauðsynlegri fjárfestingu og uppbyggingu í landinu og beina fjármagninu á skynsamlegan hátt til þeirra verkefna sem skila mestu í þjóðarbúið og treysta undirstöður atvinnu- og efnahagslífsins, hafa að sjálfsögðu leitað að fjármagni innanlands. Sannleikurinn er sá, að þar er ekki um auðugan garð að gresja. Það er þess vegna sem menn hafa viljað hafa meiri stjórn á því gífurlega mikla fjármagni sem lífeyrissjóðirnir í landinu hafa yfir að ráða. Á þessu ári er t. d. talið að ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna verði 27 milljarðar þegar þeir hafa að fullu staðið við allar greiðslur og útgjöld vegna starfsemi sinnar. Sennilega verður þetta þó nokkuð meira eins og mér sýnist allt horfa í þjóðfélaginu um þessar mundir.
En við 3. gr. var gerð breyting. Þar segir á einum stað: „Ríkisstj. kynnir hverjum og einum lífeyrissjóði að hvaða marki sjóðurinn skuli kaupa bréf af hvorum þessa fjárfestingarsjóða.“ Það var gerð sú breyting, að í staðinn fyrir „skuli kaupa“ komi kaupi — að hvaða marki sjóðurinn kaupi. Þetta er nánast engin efnisbreyting, en fer betur í málinu.
Þá var sú breyting gerð í Nd. frá því sem frv. var upphaflega, að settur var punktur á eftir „ Seðlabanka Íslands“ og fellt niður: „enda sé sala skuldabréfa þessara í samræmi við lánsfjáráætlun ríkisstj.“
4. gr. fjallar um Landsvirkjun, að henni sé heimilt að taka lán á árinu 1979 allt að 6500 millj. kr. Sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða nánar um það að öðru leyti en því, að nýjar upplýsingar benda til þess að það lán muni ekki nægja fyrir þeim fyrirhuguðu framkvæmdum sem þar eru á ferðinni. En þau mál verður að taka upp síðar, þegar þau hafa verið skýrð nánar fyrir ríkisstj. Kann að verða nauðsynlegt að bæta þar einhverju við.
5. gr. fjallar um heimild til lántöku vegna hitaveituframkvæmda. Þar er talað um ýmsar hitaveituframkvæmdir sem ég sé ekkí ástæðu til að rekja hér. Ég vildi geta þess, að þegar ég mælti fyrir þessu máli í Nd. var orðið ljóst að yfir okkur var að skella ný olíukreppa með gífurlegum hækkunum á olíuvörum. Þá gat ég þess, að það kynni að vera skynsamlegt í ljósi nýrra viðhorfa, sem skyndilega höfðu komið fram, að beina meira fjármagni til uppbyggingar hitaveitna en gert er ráð fyrir í fjárfestingar- og lánsfjáráætluninni til þess að spara olíuinnkaup. Má þá nefna hitaveitur eins og Hitaveitu Akureyrar, sem sennilega vantar um 700–800 millj. kr. til þess að hægt verði að ljúka að fullu við hana á þessu ári, og Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar. Ýmis fleiri mál á þessum vettvangi gæti verið um að ræða. Ég tek þetta fram hér til að upplýsa hv. þm. um að í raun og veru var um þetta viss fyrirvari vegna breyttra viðhorfa.
7. gr. fjallar um Orkubú Vestfjarða, heimild til að taka lán.
8. gr. fjallar um að Byggðasjóði sé heimilt að taka lán á árinu að fjárhæð 1480 millj. kr. til þess að standa undir fjármagnsútgjöldum vegna byggðalína.
9. gr. fjallar um að Framkvæmdasjóði sé heimilt að taka lán að fjárhæð 3950 millj. kr. eða jafnvirði þeirrar fjárhæðar í erlendri mynt. Við þessa grein var samþ. viðbót í Nd. upp á 500 millj. kr. Það var vegna þess að þegar gerð var breyting á útflutningsgjaldi sjávarafurða kom í ljós, að hækkun úr 6% í 5% leiddi af sér minna framlag úr ríkissjóði til Fiskveiðasjóðs lögum samkv. en áður hafði verið, vegna þess að það fylgir þeirri upphæð sem gjaldinu nemur. Sú skerðing nam um 450 millj. kr. Þess vegna þótti nauðsynlegt að hækka lántökur til handa Fiskveiðasjóði til þess að vega upp á móti þeirri skerðingu sem þarna varð. Hér er gert ráð fyrir 500 millj. kr., en skerðing Fiskveiðasjóðs nam 450 millj. Ástæðan fyrir 50 millj. kr. til viðbótar er sú, að á 6. gr. fjárl. ársins í ár er heimilt að taka lán allt að 50 millj. kr. til að greiða undirbúningskostnað vegna smíði strandferðaskips. Er meiningin að afla þarna þessa fjár til að sá undirbúningur geti farið fram.
10. gr. fjallar um að fjmrh. f. h. ríkissjóðs sé heimilt að ábyrgjast með sjálfskuldarábyrgð eða að taka lán, er komi að hluta eða öllu leyti í stað ríkisábyrgðar, og endurlána þeim aðilum, sem tilgreindir eru í 5., 3. tölul. 6., 7., 8. og 9. gr., með þeim kjörum og skilmálum sem hann ákveður.
11. gr. fjallar um Húsnæðismálastofnun ríkisins.
12. gr. fjallar um framlag ríkissjóðs til Jarðasjóðs. Svo voru gerðar nokkrar breytingar á 13.,14.,15.,17., 18., 19. og 20. gr., sem ég skal gera grein fyrir. Þær breytingar, sem á þeim greinum voru gerðar, stafa af því, að í aths. með fjárlagafrv. er gert ráð fyrir að draga úr framlögum ríkisins til hinna ýmsu fjárfestingarlánasjóða sem nemur 10%. Þegar fjárfestingar- og lánsfjáráætlunin var unnin var þetta reiknað út með tilliti til þeirra forsendna sem þá lágu fyrir hendi um hvað háar upphæðir væri um að ræða í þessum tilvikum, dregið var frá 10% og upphæðin síðan færð inn í þessar greinar. Nú hefur dregist mjög að afgreiða fjárfestingar- og lánsfjáráætlunina, og þegar farið var að reikna upp á nýjan leik á grundvelli þeirra forsendna, sem nú liggja fyrir um verðlag, kom í ljós að tölur hafa hækkað, ef reiknað er með 10% niðurskurði, og þess vegna var þeim tölum breytt í Nd. Alls þýðir þetta að framlög til hinna einstöku sjóða hafa hækkað um 600-700 millj. kr. Þannig var málið samþ. og afgreitt frá Nd. Þar af fara rúmar 500 millj. til Byggingarsjóðs ríkisins, hitt eru tiltölulega litlar upphæðir.
Á 20. gr., sem fjallar um Ferðamálaráð og Ferðamálasjóð, voru gerðar breytingar. Lagt var til upphaflega í frv. að til Ferðamálaráðs skyldu renna eigi meira en 10% af skilum Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli til ríkissjóðs. Í lögum um Ferðamálaráð er kveðið svo á að til ráðsins skuli renna sem svarar 10% af heildarveltu Fríhafnarinnar. Á þessu er náttúrlega mikill munur. Var gerð sú breyting á í Nd. að hækka þessa prósentu upp í 30%. Var það gert með mínu samþykki, því hér var um að ræða allt of stórt stökk. Frv. hefði þýtt að framlög til Ferðamálaráðs hefðu lækkað úr ca. 180 millj. niður í 48 millj. Eftir þeim áætlunum, sem fyrir liggja, sem eru ekki kannske alveg tryggar vegna þess að þetta snertir að sjálfsögðu afkomu Fríhafnarinnar, er gert ráð fyrir að þrefalda þetta, þannig að framlagið hækkar sem því nemur. Einnig var gerð sú breyting á 20. gr. að hún skyldi aðeins gilda fyrir árið 1979, en það er ekki tiltekið sérstaklega í greininni sjálfri. Að vísu er heiti frv. á þá leið, að það er miðað við árið 1979, og ég geri ráð fyrir að það verði túlkað á þá leið, en þó þótti rétt að taka af öll tvímæli í þessu efni.
Herra forseti. Ég hygg að ég hafi gert grein fyrir þeim breytingum, sem málið tók í Nd., til þess að skýra betur fyrir hv. þm. hvernig málið stendur. Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um málið, nema að gefnu tilefni, og leyfi mér að leggja til að því verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn. að lokinni þessari umr.