11.05.1979
Neðri deild: 85. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4671 í B-deild Alþingistíðinda. (3857)

298. mál, ríkisreikningurinn 1977

Fjmrh. (Tómas Árnason):

Herra forseti. Hv. 1. þm. Reykn. hefur gert fsp. um hvað líði ríkisreikningi fyrir árið 1978. Um það hef ég það að segja, að þeir fyrstu kaflar ríkisreikningsins fyrir árið 1978 munu verða tilbúnir fyrir þinglausnir. Kaflar þessir ná yfir 70 fyrstu síður reikningsins. Munu þm. fá þennan hluta ríkisreikningsins í hendur strax og honum er lokið. Í athugun er að nýta nýjar vélar hjá Ríkisprentsmiðjunni Gutenberg við frágang þeirra sérstöku yfirlita sem III. kafli ríkisreikningsins hefur að geyma. Stefnt er að því að undirbúningsvinna við prentun fjárl. nýtist við gerð ríkisreiknings, en eins og sjá má eru fjárlagatölur teknar upp í reikningum til samanburðar. Ég mun þó gæta þess sérstaklega, að tilraunir þessar taki ekki óhóflega langan tíma, og leggja kapp á að ríkisreikningurinn í heild verði sem fyrst tilbúinn.