11.05.1979
Neðri deild: 85. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4682 í B-deild Alþingistíðinda. (3869)
294. mál, almannatryggingar
Eðvarð Sigurðsson:
Herra forseti. Það er aðeins örstutt aths. vegna ummæla hv. þm. Friðriks Sophussonar. Mér finnst hann ekki hafa skilið það sem ég sagði um að atvinnurekendur ættu að greiða þessar tryggingar, og hann fór að tala um hvernig smáatvinnurekendur gætu staðið undir þessum greiðslum. Það, sem ég átti við, var alls ekki að atvinnurekendur ættu að greiða svo og svo marga mánuði í kaup vegna fjarvista kvenna þegar um barnsfæðingar er að ræða, heldur einmitt hitt, að þeir greiði sameiginlega tryggingarnar og alveg frá fyrsta degi. Ég held að það sé það fyrirkomulag sem sé langheppilegast, bæði fyrir konurnar og einnig fyrir atvinnurekendurna, og ég trúi að það sé ekki í raun og veru neinn misskilningur um þetta atriði milli mín og hv. þm. Friðriks Sophussonar.