11.05.1979
Neðri deild: 85. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4685 í B-deild Alþingistíðinda. (3882)

151. mál, framhaldsskólar

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Þetta er mikið mál og flókið sem hér er til umr. Það er auðvitað öllum ljóst, að enn þá er óljóst með margar breytingar sem á þessu mikla frv. hafa verið gerðar og eiga eftir að vera gerðar. Ég minni t. a. m. á óljósa framtíð fjölmargra menntastofnana sem eigi að síður eru orðnar snar þáttur í sögu þessarar þjóðar. En vegna þess, hvernig þessi mál hafa þróast, er ekki rétt að standa í vegi fyrir því að þetta mál komist í gegnum umr., jafnvel þó að á því eigi enn eftir að verða gerðar einhverjar breytingar, og af þessum ástæðum segi ég já.