11.05.1979
Sameinað þing: 92. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4697 í B-deild Alþingistíðinda. (3900)
264. mál, fiskeldi að Laxalóni
Frsm. (Vilmundur Gylfason):
Herra forseti. Á þskj. 546 er flutt till. til þál. um aðgerðir vegna fiskeldis að Laxalóni. Þetta mál á sér að því leyti óvenjulega forsögu, að flutningsaðili þessa máls er öll allshn. Nd. Allshn. Nd. ákvað að eigin frumkvæði að kanna svo vel sem auðið væri samskiptamál þau sem kölluð hafa verið Laxalónsmál. Þetta eru orðin löng og flókin mál með allmiklu tilfinningalegu ívafi, — mál sem eiga sér þriggja áratuga sögu, — og það, sem n. gerði, var að nota sér þann rétt, sem hún hefur sem þn., og kalla fyrir þá aðila, sem gátu veitt upplýsingar um þetta mál, viða að sér öllum þeim upplýsingum, sem hún taldi mögulegt, og semja ályktun í formi till. til hins háa Alþ. um hvernig með skuli fara.
Niðurstaða og ályktun allshn. Nd. til Alþingis er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Alþingi ályktar
1. Að skipuð verði þriggja manna nefnd, sem verði falið að vinna að eftirfarandi verkefnum: að meta það brautryðjendastarf sem Skúli Pálsson hefur unnið með eldi á regnbogasilungi hér á landi; að meta tjón það sem kann að verða vegna niðurskurðar á regnbogasilungsstofni Skúla Pálssonar, þar til nýr stofn er orðinn kynþroska og arðbær; að meta verðmæti stöðvarinnar að Laxalóni með það fyrir augum að Alþ. samþykki að ríkið festi kaup á henni; að gera till. um uppbyggingu fiskræktarstöðvar að Þóroddsstöðum II í Ölfusi og hvernig þar megi halda áfram þeirri fiskrækt sem nú er í Laxalóni.
2. Væntanlegur kostnaður vegna máls þessa verði greiddur úr ríkissjóði.“
Með þessari till. til þál. fylgir svofelld grg.:
„Allshn. Nd. hefur um nokkurra mánaða skeið að eigin frumkvæði haft til athugunar málefni Skúla Pálssonar að Laxalóni og samskipti hans við opinbera aðila. Málið hefur verið kannað frá mörgum hliðum. Til að afla upplýsinga hafa eftirtaldir aðilar komið til fundar við nm. og gefið upplýsingar: Sveinn Snorrason hrl., Þór Guðjónsson veiðimálastjóri, Skúli Pálmason hrl., Páll A. Pálsson yfirdýralæknir, Guðmundur Pétursson forstöðumaður, Keldum, dr. Sigurður Helgason fisksjúkdómafræðingur, Skúli Pálsson framkvæmdastjóri og Sveinbjörn Dagfinnsson ráðuneytisstjóri.
Svo sem sjá má af þessari upptalningu hefur n. rætt við allmarga einstaklinga vegna þessa máls, sem almennt gengur undir heitinu „Laxalónsmálið“, í því skyni að afla greinargóðra og hlutlægra upplýsinga.
Í ljós hefur komið að hér er um að ræða deilumál sem erfitt er að leggja á tölulegt mat. Málið er öðrum þræði af tilfinningalegum toga spunnið, og hafa tekist á framkvæmdavilji annars vegar og verndunarsjónarmið hins vegar. Stjórnvöld og embættismenn verða ekki áfelld fyrir að taka tillit til verndunarsjónarmiða gagnvart viðkvæmu lífríki landsins. Því síður er unnt að áfellast athafnamenn sem vilja efla og auka rekstur sinn.
Það er hins vegar ljóst, að fiskrækt getur verið mjög arðvænleg atvinnugrein ef rétt er að staðið. Nægir í því sambandi að minna á reynslu Dana, Norðmanna og fleiri þjóða. Það er þess vegna skoðun nm., að Alþ. beri að gera það sem í þess valdi stendur til að greiða fyrir framförum í þessari atvinnugrein, án þess að tekin sé ástæðulaus áhætta.
Skúli Pálsson hóf eldi á regnbogasilungi árið 1951, eftir að hafa flutt regnbogasilungshrogn til landsins. Þekking á fisksjúkdómum hefur fleygt fram síðan þá. Vegna fjárskorts og af öðrum ástæðum var ekki fyrir hendi hér á landi aðstaða né sérhæfðir starfskraftar til að ákvarða óumdeilanlega heilbrigði regnbogasilungsins. Hins vegar hefur ekki í röskan aldarfjórðung fundist neinn kvilli í regnbogasilungsstofninum.
Stjórnvöld hafa á þessu árabili verið á varðbergi gagnvart hugsanlegum sjúkdómum og enga áhættu tekið. Þessa afstöðu hafa sumir nefnt óeðlilega tregðu embættismanna og stjórnvalda. Árið 1976 gerðist það svo, að staðfest var nýrnaveiki í laxastofni á Laxalóni. Þar eð ekki þykir sannað að regnbogasilungur geti ekki borið þennan sjúkdóm, þótt hann sýkist ekki sjálfur, þykir n. rétt að farið verði að tillögum dr. Sigurður Helgasonar um niðurskurð á regnbogasilungsstofninum að klaki loknu á vori komanda. Ætlunin er að sótthreinsa hrognin og koma upp nýjum stofni.
En hver sem upptök deilunnar um regnbogasilunginn kunna að vera er ljóst að með árunum hefur mikill hiti færst í hana. Óhætt er að fullyrða að þar hefur verið farið út fyrir skynsamleg mörk. Verður ekki séð að slíkar deilur séu til þess fallnar að auka gagnkvæmt traust þegns og stjórnvalds.
Ógerlegt er að meta nákvæmlega hugsanlegt tjón vegna varfærni stjórnvalda gagnvart regnbogasilungsræktun á undanförnum árum, varfærni sem m. a. byggist á því að nauðsynleg aðstaða hefur ekki verið fyrir hendi til rannsókna. Hér er átt við hugsanlegt tjón Skúla Pálssonar og þjóðarheildarinnar. Vegna þess að hér getur verið um arðvænlega atvinnugrein að ræða er það skylda Alþ. að vera hvetjandi, en ekki letjandi þegar um þessi mál er fjallað. Um leið ber og að taka fyllsta tillit til álits hæfustu sérfræðinga.
Ekki leikur vafi á því, að Skúli Pálsson hefur orðið fyrir og á eftir að verða fyrir fjárhagslegu tjóni vegna þróunar mála. Hætt er við að tilraunin að Laxalóni, fái hún þann endi sem nú blasir við, muni draga kjark úr öðrum sem hug hafa á svipuðum tilraunum. Þess vegna gerir allshn. þær till. sem hér hefur verið lýst.“
Nú vil ég leggja á það þunga áherslu við sameinað Alþingi, að það er n. í annarri deildinni sem sameiginlega hefur komist að þessari niðurstöðu. Þar eru nm. úr öllum stjórnmálaflokkum. Í allshn. Nd. eiga sæti: Árni Gunnarsson úr Alþfl., Einar Ágústsson úr Framsfl., Friðrik Sophusson úr Sjálfstfl., Gils Guðmundsson úr Alþb., Matthías Á. Mathiesen úr Sjálfstfl., Svava Jakobsdóttir úr Alþb. og Vilmundur Gylfason úr Alþfl., og þessir nm. eru sammála um þá till. til þál. svo sem hún er lögð fram af n. fyrir hæstv. Sþ.
En nú er það svo, að það liggur mikið við að þetta mál verði ekki tafið og þæft, heldur að það fái greiða afgreiðslu. Framtíð þessa rekstrar að Laxalóni er í húfi. Eftir að allshn. Nd. fór af stað með þessa athugun s. l. haust hefur hæstv. landbrh. skipað aðra n. með hliðstæð verkefni, og af þeim sökum einnig er orðið mjög knýjandi að Alþ. marki stefnu í þessum efnum. Nefnd í deild, skipuð fulltrúum allra stjórnmálaflokka, hefur náð samkomulagi og mjög góðri samvinnu um þetta mál. Því bið ég þess að það hendi ekki Alþ. á lokastigi þessa máls að bregða fæti fyrir það. Við lítum svo á að það sé eins vél unnið og auðið var. Þingnefndin hefur í allan vetur að þessu unnið. Þó að dagskrá hafi verið svo hagað að það komi ekki til umr. fyrr en á allra síðustu dögum þingsins, þar sem að þessu standa fulltrúar allra stjórnmálaflokka, þá sýnist mér, að eðli málsins samkv. eigi að vera auðvelt að láta þetta mál renna hér greiðlega í gegn.
Ég legg að lokum á það áherslu, að hér er um framtíð heillar atvinnugreinar að ræða. Og svo sleppt sé þeirri persónusögu sem inn í þetta mál spinnst, sem í sjálfu sér er auðvitað ekki aðalatriði málsins þó að hún skipti einhverju máli, þá er hér um svo mikilvægt mál að ræða að það þolir raunar ekki bið. Þarna verður að koma til stefnumörkun. Hún er hér lögð til af fulltrúum allra stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþ. Og ég vil enda á því að biðja þess, að þetta mál verði ekki tafið, heldur að þessi till. verði samþ. og framkvæmdir verði síðan í samræmi við það.