14.05.1979
Efri deild: 100. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4721 í B-deild Alþingistíðinda. (3925)

271. mál, heilbrigðisþjónusta

Oddur Ólafsson:

Herra forseti. Ég vil endurtaka það, sem hv. frsm. endaði á að taka fram, að n. hafði í raun og veru hug á því að flytja fleiri brtt. við það mál sem hér er til umr., en þar eð hún hafði ekki aðstöðu til þess að koma meiri breytingum fram, þá urðum við að láta okkur nægja það sem hér kemur fyrir ykkar sjónir. Ég tel þó að hér sé um eina mikilvæga breytingu að ræða, og hún er sú, eins og frsm. tók fram, að það er nú orðið heimilt að ráða aðstoðarlækni hluta úr ári til H 1 stöðva. Mesti vandi íslensku heilbrigðisþjónustunnar í dreifbýlinu eru einmitt þeir tiltölulega fáu staðir þar sem aðeins er einn læknir. Þessi læknir er allt öðruvísi settur heldur en opinberir starfsmenn eru yfirleitt. Hann er yfirleitt bundinn við sitt starf, þegar á honum þarf að halda, og ræður því ekki sjálfur hvort hann fær sumarfrí eða ekki, og þetta hefur valdið því, að nú munu vera aðeins tveir eða þrír fastráðnir læknar á H 1 stöðvunum, sem eru 17 eða 18. Þetta sýnir best hve ástandið er orðið alvarlegt og öryggisleysið mikið fyrir það fólk sem þarna býr. Ég held að það sé mjög líklegt, að þessi setning, sem þarna er skotið inn í lögin, komi til með að breyta möguleikum þessara manna allmikið, og tel ég því að nokkuð hafi áunnist í þessu efni.

Eins og frsm. n. tók fram leggjum við einnig til að Grindavíkurkaupstaður, sem er orðinn stór kaupstaður með 1800–2000 manns og mjög mikla útgerð, verði nú H 1 stöð. Það var upphaflegur tilgangur heilbrigðisþjónustulaganna, að það yrðu miðstöðvar þar sem störfuðu tveir eða fleiri læknar, en síðan minni umdæmi sem hefðu ekki lækni með búsetu, heldur væru stunduð frá þessum miðstöðvum. Þetta hefur verið aðgengilegt og hefur gengið vel, en það eru þó viss takmörk fyrir því, hve langt þetta getur gengið. Og það er ýmist af landfræðilegum ástæðum, eins og er sums staðar úti á landi þar sem erfiðar heiðar gera það að verkum að hafa verður enn þá H 1 stöðvar í stað þess að hafa miðstöðina með fleiri læknum, og svo H stöðvar. Þegar aftur á móti íbúar eru orðnir þetta margir og umsvif mikil eins og er í Grindavík, enda þótt samgöngur séu góðar, þá virðist vera nauðsynlegt að þar fari að koma læknir með búsetu.

Ég sem sagt tel að þessar brtt. séu til bóta og vona að á næsta þingi verði bætt úr því sem ekki náðist fram núna, þ. e. með vissum breytingum á kostnaðarliðum sem ekki reyndist unnt að ganga frá nú.