14.05.1979
Efri deild: 100. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4722 í B-deild Alþingistíðinda. (3926)
271. mál, heilbrigðisþjónusta
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég vil þakka n. fyrir það að hafa tekið til greina brtt. á þskj. 568 að því er varðar Grundarfjörð. Það er mjög mikill áhugi á því, eins og kom fram í framsögu um þetta mál, að þessi staður fái sérstöðu að því leyti að þar verði H 1 stöð til þess að mögulegt verði að ráða þangað lækni að hluta og bæta þá aðstöðu sem er fyrir á svæðinu. En eins og kom fram hjá frsm. er þetta mjög ört vaxandi byggðarlag og verður ekki langur tími þar til fólksfjöldi eins og nú horfir verður kominn á annað þúsund. Ég vil sem sagt lýsa ánægju yfir því, að samstaða skyldi nást um þetta veigamikla atriði.
Jafnframt vil ég vonast til þess, að hv. heilbrn. Ed. afgreiði annað mál sem liggur fyrir n. í sambandi við breytingu á heitbrigðislöggjöfinni að því er varðar kostnaðarhluta sveitarfélaga í viðhaldskostnaði sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva, og vænti þess, að það mál komi fyrir d. á næstu dögum.