08.11.1978
Efri deild: 12. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 449 í B-deild Alþingistíðinda. (394)
62. mál, aðstoð við sveitarfélög vegna lagningar bundins slitlags á vegi í þéttbýli
Þorv. Garðar Kristjánsson:
Herra forseti. Það er liðinn einn dagur síðan umr. um þetta mál var frestað og ég bað um orðið, og ég er ekki viss um að ég haldi að öllu leyti sömu ræðu nú og ég hefði gert þá, þegar þetta var ferskt. Ég skal ekki heldur lengja mikið þessar umr. Þær komu m.a. inn á skattamál og önnur óskyld mál þessari þáltill. Það var t.d. með nokkuð furðulegum hætti, hvernig hv. 3. landsk. þm. brá sér í landsföðurlega mynd og taldi sig vera að gera athugasemdir og veita m.a .hv. 5, þm. Reykv. leiðbeiningar varðandi skattamál. Ég skal ekki fara út í það nú. Hv. þm. fór það mjög vel að tala í þeim anda sem hann talaði á þessum fundi, en það var aðeins einn ljóður á ráði hans. Hann byggði málflutning sinn á því, að skattaálögur og viðbótarskattar núv. ríkisstj., álögurnar í heild sem nú væru lagðar á, færu ekki fram úr því sem hefði mátt gera ráð yfir ef þau skattalög, sem samþykkt voru á síðasta þingi, hefðu verið komin í gildi. Þetta er auðvitað slík fjarstæða, að það ætti að vera óþarfi að víkja orðum að því, enda hygg ég að hv. þm. geri sér grein fyrir þessu. Hann sló þessari fullyrðingu fram án þess að færa nokkur rök fyrir henni. En það mætti e.t.v. ætla af tali hv. þm., að hann væri áhugamaður um að lækka skatta, og það verður fróðlegt að sjá gerðir hans í því efni.
Þá var annað mál sem kom hér nokkuð til umr., og það er frv. sem var til meðferðar á Alþ.,1976 síðast, varðandi gatnagerðargjöld á Akureyri. Þá voru miklar umr. hér í hv. Ed. um þetta mál, og mér eru þær, þó nokkuð sé um liðið, í fersku minni. Til umræðu var nefndarálit hv. félmn. í þessu máli. Ég var þá bæði formaður og frsm. félmn., og ég hef ekki komist í það harðara en í þeim umr. sem þá urðu um þetta nefndarálit. Þar börðust hraustlega vinir mínir, hv. 2. þm. Norðurl. e, og hv. núv. 4. þm. Norðurl. e. Þeir börðust mjög knálega í þessu máli, en nefndarálitið var samþykkt, og í nefndarálitinu fólst það, að frv. væri vísað til ríkisstj. með ábendingu um það, að þetta mál yrði tekið til sérstakrar athugunar í sambandi við endurskoðun á tekjustofnalögum sveitarfélaga. Það var ekki að ástæðulausu að þessi afgreiðsla var viðhöfð, þegar haft er í huga að í fyrsta lagi eru í tekjustofnalögunum ákvæði um fasteignaskatt á fasteignir, í öðru lagi eru í lögum um gatnagerðargjald frá 1974 ákvæði um gjald á fasteignir um leið og byggingarleyfi er veitt, svokallað A-gjald, og í þriðja lagi er í sömu lögum þriðja tegundin af gjöldum á sömu fasteignir, þ.e.a.s. til þess að afla fjár til að koma slitlagi á götur. Frv., sem var til umr. 1976, fjallaði um að bæta við fjórðu tegundinni af gjöldum á sömu fasteignir. Það var með tilliti til þessa, að málið fékk þá afgreiðslu sem ég gat um, því var vísað til ríkisstj. Inn í þær umr. kom spurningin um afturvirkni, og ég hygg að ekki verði komist hjá því að gæta sérstaklega að þeirri hlið þessara mála. Afturvirknin er vægast sagt mjög vafasöm, og ég tel að ekki sé ástæða til að leggja áherslu á þá leið í þessum málum til þess að auka framkvæmdir við að koma í þéttbýlinu varanlegu slitlagi á vegi. Þess vegna er ég andvígur þessu ákvæði í till, þeirri sem hér liggur fyrir.
Hins vegar stend ég upp fyrst og fremst til þess að lýsa stuðningi mínum við það, að efldar verði aðgerðir til að koma á meiri og hraðari framkvæmdum í varanlegri gatnagerð í þéttbýli en verið hefur. Það, sem stendur á í því efni, er auðvitað fjármagnið, og er ekki nema gott um það að segja, að gerðar séu ráðstafanir til að auka það með beinum framlögum og með lántökum, eins og hér er gert ráð fyrir.
Það orkar ekki tvímælis, að einmitt þetta mál, gatnagerðin, er eitt af því þýðingarmesta í allri viðleitni til þess að koma á meiri jöfnuði milli strjálbýlisins og þéttbýlisins. Það er margt sem þarf að gera í þeim efnum, en ég hygg að þetta sé eitt af því allra nauðsynlegasta. Það er þess vegna mjög ánægjulegt að vita til þess, að á síðasta kjörtímabili hafa orðið meiri framfarir í þessu efni en nokkru sinni fyrr. Þessu starfi þarf að halda áfram því að mikið er enn þá óunnið, og mér finnst ekki fara illa á því, eins og hv. fyrri flm. þessarar till. talaði um, að minna hæstv. ríkisstj. á þetta verkefni. Þess vegna tel ég að það sé gott, að þessi till. kom fram, og það ætti að afgreiða hana jákvætt.