14.05.1979
Neðri deild: 86. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4745 í B-deild Alþingistíðinda. (3978)

189. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Frsm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Félmn. d. fékk til meðferðar frv. til l. um breyt. á lögum um Húsnæðismálastofnun ríkisins á þskj. 655. N. hefur athugað þetta frv. og ákveðið að mæla með samþykkt þess, enda er frv. rökrétt afleiðing þess, að íbúðarhúsabyggingar í sveitum heyra nú undir Húsnæðismálastofnun ríkisins, en ekki Stofnlánadeild landbúnaðarins eins og áður var.

Gunnlaugur Stefánsson og Stefán Valgeirsson voru fjarverandi afgreiðslu þessa máls. Undir þetta skrifa: Jóhanna Sigurðardóttir, Páll Pétursson, Eðvarð Sigurðsson, Gunnar Thoroddsen og Eggert Haukdal.