15.05.1979
Sameinað þing: 94. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4759 í B-deild Alþingistíðinda. (4001)

355. mál, byggingamál Ríkisútvarpsins

Fyrirspyrjandi (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Fsp. mín er á þessa leið:

„1. Hvenær hefjast að nýju framkvæmdir við útvarpshúsið?

2. Hvenær er áformað að ljúka fyrsta áfanga?

3. Hvernig verður verkið fjármagnað?“

Ég vil fara örfáum orðum um efni þessara spurninga, en ýmsar aðstæður hafa breyst dálítið, síðan þær voru bornar fram, og ýmsar upplýsingar hafa raunar komið fram hér síðan fsp. voru formaðar og lagðar fyrir í upphafi.

Nú er skammt að bíða þess, að Ríkisútvarpið verði 50 ára. Það náði mjög skjótri útbreiðslu, varð eign allrar þjóðarinnar á mjög skömmum tíma, enda þótt stofnun þess bæri upp á mikil kreppuár. Það sama gilti um sjónvarpið. Því var tekið ákaflega vel, tekið tveim höndum frá upphafi og dreifing þess varð með mjög skjótum hætti. Sjónvarpið eignaðist strax eigið húsnæði og það var tvímælalaust heillaspor. Aftur á móti hefur útvarpið verið leigjandi frá upphafi og stundum á hrakhólum og býr nú við mikil þrengsli, eins og kunnugt er, — þrengsli sem ég tel að torveldi mjög eðlilega þróun stofnunarinnar og dagleg störf hennar.

Um áraraðir hefur Ríkisútvarpinu verið gert að leggja í framkvæmdasjóð samkv. lögum og honum einkum ætlað að fjármagna húsbyggingar, hygg ég. Saga þessa framkvæmdasjóðs er mjög sérstök. Hann hefur með ákvörðunum stjórnvalda oftar en einu sinni og oftar en tvisvar verið tekinn til þess að leysa úr til bráðabirgða og jafnvel til óskyldra verkefna. Ég þarf ekki að fara að rekja það að þessu sinni. En ég vil þó aðeins minna á þá þróun sem varð í sambandi við þennan sjóð á árunum 1973–1978.

Í árslok 1974 var svo komið að óhjákvæmilegt reyndist að lána þennan sjóð, einnig það sem hafði verið lagt fyrir, beint í rekstur Ríkisútvarpsins, því það lá við lokun hvað eftir annað. Viðskiptabanki útvarpsins hótaði hörðu, og ég held að jafnvel hafi verið stöðvaðar greiðslur einn dag eða svo. Til þess að leysa úr þeirri flækju var tekið 100 millj. kr. lán sem átti svo að endurgreiða á tveimur árum. Það var gert smátt og smátt. Með aðhaldi, með hækkun afnotagjalda og með hækkun auglýsingataxta var þetta lán greitt, það voru greiddar eftirstöðvar af erlendum skuldum frá því að sjónvarpið var sett á stofn og það var skilað í framkvæmdasjóð því fé sem þar átti að vera. Þetta var verulegt átak á 2–3 árum til þess að rétta fjárhagslega stöðu Ríkisútvarpsins. Svo gerist það, að með álagningunni 1978 er stillt inn á að hægt væri að leggja, þó það væri ekki lögskylda, 10% brúttó tekna í framkvæmdasjóðinn.

Ég vil í annan stað nefna það, að undirbúningur að þessari húsbyggingu er orðinn býsna langur. Ég tel að það hafi verið, eftir því sem menn frekast höfðu vit og getu til, vandað til þess undirbúnings. Það hefur verið haft náið samstarf við nágranna sem eru nýlega búnir að reisa útvarpshús hjá sér, Íra. Og varðandi staðinn, lóðina hér í höfuðstaðnum sem þessari byggingu er ætluð, hefur verið séð vel fyrir framtíðinni og ætluð rúmgóð lóð þannig að möguleiki er að byggja við síðar.

Það var í fyrstunni stefnt að því að byggja þann hluta sem átti að tilheyra útvarpinu, sem sumir kalla hljóðvarp, en haft í bakhöndinni að sameining gæti orðið síðar í fyrsta hluta með hinum tveimur deildum, útvarpi og sjónvarpi. Þegar þetta mál kom svo til samstarfsnefndar um opinberar framkvæmdir fóru menn að leiða hugann að því að forma þetta þegar frá upphafi þannig, að báðar stofnanirnar kæmust inn nokkurn veginn samtímis. Hygg ég að samstarfsnefnd opinberra framkvæmda hafi unnið mjög gott verk þegar hún beitti sér fyrir því, að strax yrði formað þannig til þessarar byggingar að báðar deildir Ríkisútvarpsins kæmust þar inn nokkurn veginn samtímis. Og þannig var þetta svo lagt fyrir, að að þessu skyldi stefnt.

Ég vil að lokum árétta að þetta byggingarmál er ákaflega brýnt og þess vegna er nú um það spurt, til þess að fá nýjustu upplýsingar áður en þm. fara heim.

Þetta er mjög brýnt af mörgum ástæðum: Þrengslin á Skúlagötunni eru ákaflega mikil og útvarpinu bagaleg, eins og ég sagði í upphafi. Það er einnig að verða þröngt um sjónvarpið þar sem það er. Það er byrjað að leigja húsnæði úti í bæ fyrir geymslur o. þ. h. Það er líka ástæða til að minna á, að orðin er brýn þörf á húsnæðinu á Skúlagötu fyrir þær stofnanir sem það var ætlað fyrir í upphafi. Sjútvrn. hefur ítrekað látið í ljós að það þyrfti það húsnæði og hefur sagt upp leigunni.

Ég fer ekki fleiri orðum um spurningarnar, en þær eru eins og ég áðan greindi.