15.05.1979
Sameinað þing: 95. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4768 í B-deild Alþingistíðinda. (4018)
172. mál, þáttur landbúnaðarframleiðslu í atvinnulífi þjóðarinnar
Frsm. (Þórarinn Sigurjónsson):
Herra forseti. Atvmn. hefur tekið fyrir og rætt till. til þál. um könnun á þætti landbúnaðarframleiðslu í atvinnulífi þjóðarinnar. N. höfðu borist samþykktir og áskoranir um að samþykkja þáltill. og leggja það til við Alþingi. M. a. höfðu borist áskoranir frá Búnaðarfélagi Íslands og Stéttarsambandi bænda ásamt fleiri aðilum nokkuð víða að af landinu. Nm. ræddu þetta mál á fundi sínum og voru sammála um að leggja til að þessi þáltill. yrði samþ.
Fjarstödd afgreiðslu málsins voru Friðrik Sophusson, Jóhanna Sigurðardóttir og Jón G. Sólnes.