15.05.1979
Neðri deild: 88. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4787 í B-deild Alþingistíðinda. (4066)

249. mál, afborgunarkaup

Frsm. (Kjartan Ólafsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. fjh.- og viðskn. um frv. til l. um afborgunarkaup. Nál. er á þskj. 706.

Hér er um að ræða stjfrv. Hefur verið um það fjallað í fjh.- og viðskn. og nm. orðið sammála um að mæla með samþykkt frv. Hv. 7. þm. Reykv., Vilmundur Gylfason, var fjarstaddur afgreiðslu málsins. Einstakir nm. áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja brtt.

Frv. var sent til umsagnar tveimur aðilum, Verslunarráði Íslands og Neytendasamtökunum. Þessum aðilum var gert að skila umsögnum um málið fyrir 7. maí, en þeim var sent það í aprílmánuði til umsagnar. Umsagnir höfðu hins vegar ekki borist þegar gengið var frá nál. 11. maí, en hafa borist nú. Ég tel rétt að kynna d. fáein atriði úr umsögnunum, en tek fram að n. hafði ekki tækifæri til að fjalla um þær áður en hún afgreiddi málið þar sem þær bárust ekki fyrr en skilafrestur var runninn út.

Í umsögn Neytendasamtakanna segir um þetta frv. m. a. á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Í íslenskum rétti hafa ekki verið lögfestar reglur um afborgunarkaup með fyrirvara um eignarrétt, enda þótt full þörf sé á fastmótuðum reglum í þeim efnum og þá ekki síst í þeim tilgangi að gætt sé hagsmuna kaupenda eða neytenda í slíkum kaupum. Við kaup af þessu tagi koma upp ýmis þau álitaefni, er ákvæði laga nr. 39/1922, um lausafjárkaup, veita ekki svar við. Meginreglan er sú samkv. 2. mgr. 28. gr. nefndra laga um lausafjárkaup, að sé kaupverð ekki greitt í ákveðna tíð, en hið selda er komið í vörslur kaupanda, getur seljandi ekki rift kaupið og þar með endurheimt hið selda nema hann hafi áskilið sér slíkan rétt. Samningur um kaup með eignarréttarfyrirvara er því undantekning frá þessari meginreglu kaupalaganna og löggjöf sú, sem sett hefur verið víða í erlendum rétti um slík kaup, mótast því yfirleitt af þeim vilja löggjafans að vernda hagsmuni kaupenda eða neytenda í slíkum kaupum. Beinist hún því að því að vernda kaupandann gegn ósanngjörnum eða harkalegum aðgerðum seljandans, einkum við endurheimtu hins selda, enda þótt jafnframt sé leitast við að tryggja seljanda fullnægjandi úrræði vegna vanefnda kaupanda.

Það sjónarmið að vernda beri hagsmuni kaupandans kemur víða fram í frv. þessu og má þar til nefna eftirtalin atriði:

1. Í 3. gr. frv. eru sett ákveðin skilyrði fyrir því að seljandi geti vegna vanefnda kaupanda endurheimt hið selda, krafist greiðslu þess, sem ógjaldfallið er, eða borið fyrir sig önnur réttaráhrif vanefnda.

2. Settar eru fastar reglur um skuldaskil kaupanda og seljanda, sbr. 4.–6. gr. frv., og þannig komið í veg fyrir að seljandi geti endurheimt söluhlut, sem kaupandi hefur e. t. v. greitt að miklu leyti, án þess að hann greiði kaupanda mismun á verðmæti hlutarins og kröfu sinni á hendur kaupanda eða setji tryggingu fyrir greiðslunni ef vafi leikur á um rétt seljanda til endurheimtu eða því hvort seljandi á að greiða kaupanda eitthvað vegna endurheimtunnar eða hversu mikið greiða skuli, sbr. 14. gr. frv.

3. Sett eru ákveðin skilyrði um form og efni samnings um afborgunarkaup svo að söluhlutur verði endurheimtur með beinni fógetagerð, sbr. 11. gr. frv., sbr. og til athugunar dóm Hæstaréttar 1965, bls 18.

4. Þau ákvæði frv., sem sett eru til verndar hagsmunum kaupanda, eru ófrávíkjanleg og því óheimilt að semja fyrirfram um lakari kjör kaupanda til handa en kveðið er á um í frv.

Með hliðsjón af framansögðu mæla Neytendasamtökin með samþykkt frv. þessa um afborgunarkaup og leggja jafnframt áherslu á að mál þetta verði afgreitt á þingi því er nú situr.

14. maí 1979.

Virðingarfyllst,

Bergur Oliversson,

lögfræðingur Neytendasamtakanna.“

Þetta var sem sagt umsögn Neytendasamtakanna um frv., sem barst að vísu síðar en skyldi. En það er einnig skylt að taka fram, að í umsögn Verslunarráðs Íslands um hið sama frv., sem dags. er í dag, 15. maí, kemur fram önnur afstaða. Segir m. a. í þeirri umsögn:

„Þegar frv. til l. um afborgunarkaup er skoðað virðist því miður sú vinna, er Verslunarráðið lagði í þetta mál, hafa verið til lítils. Að vísu er leigukaup undanskilin í frv. samkv. ábendingu okkar, en önnur varasöm ákvæði frv. standa enn óbreytt. Niðurstaða Verslunarráðsins er því enn sú sama, að afborgunarkaup í skilgreiningu frv. leggjast niður hérlendis ef það verður að lögum. Seljendur munu þá kjósa fremur að selja gegn víxlum og eiga ekki rétt á að endurheimta söluvöruna. Er sú niðurstaða samdóma álit þeirra aðila sem Verslunarráðið hefur haft samband við.“

Og síðar í umsögn Verslunarráðsins segir:

„Þótt Verslunarráðið hafni í grundvallaratriðum þessu frv. til l. um afborgunarkaup telur Verslunarráðið engu að síður æskilegt að auka og einfalda réttarvernd á þessu sviði, bæði fyrir kaupendur og seljendur. Vill Verslunarráðið leggja til að frv. verði ekki afgreitt á þessu þingi, heldur verði Neytendasamtökunum og Verslunarráðinu í sumar falið að endurskoða frv. til flutnings næsta haust. Þannig gæti það orðið seljendum vernd gegn óprúttnum kaupendum og kaupendum vernd gegn óprúttnum seljendum.“

Og þetta undirritar með virðingu fyrir hönd Verslunarráðs Íslands Árni Árnason.

Ég hef þá gert nokkra grein fyrir þessum umsögnum, sem ég taldi rétt að rekja hér vegna þess að n. hafði ekki átt kost á að fjalla um þær, en vil, áður en ég lýk máli mínu, vekja athygli á að segja má að veigamesta atriði frv. feli í sér að mönnum er gert í slíkum viðskiptum að velja á milli hvort viðskiptin fara fram í því formi að kaupandinn borgi eftirstöðvar vörunnar með víxlum eða hvort kaupandi og seljandi koma sér saman um að ganga frá viðskiptunum í því lagaformi um afborgunarkaup sem stefnt er að með þessu frv. og kveðið er á um í frv. Eins og þessum málum er nú háttað mun alloft vera um það að ræða að seljandinn heldur rétti til að endurheimta þann hlut, sem kaupandi hefur fengið í hendur með afborgunarkjörum, enda þótt kaupandinn hafi greitt hlutinn með víxlum. En frv. gengur út frá því að þarna verði að vera um annað hvort að ræða. Ef kaupandi borgar með víxlum er hann þar með eigandi hins keypta hlutar. Hinn möguleikinn stendur eftir sem áður opinn: að semja um afborgunarkaup með öðrum hætti, en þá eru líka engir víxlar þar til umræðu.

Í skýringum með 9. gr. segir um þetta atriði, — ég leyfi mér að lesa þær fáu setningar sem um það fjalla, — á þessa leið:

„Í 5. mgr. þessarar greinar er kveðið svo á að óheimilt sé að nota víxla í afborgunarviðskiptum. Ef víxlanotkun sú, sem tíðkast hefur í viðskiptum þessum, verður eftir sem áður heimil, ef frv. þetta verður að lögum, ná ákvæði þess alls ekki tilgangi sínum. Brýna nauðsyn ber til að koma í veg fyrir það, að víxlaviðskiptum sé blandað inn í afborgunarviðskipti. Ef frv. þetta verður að lögum, verða seljendur að velja um það, hvort þeir kjósa fremur víxlaréttinn eða fyrirkomulag það sem kveðið er á um í frv. þessu. Ekki verður unnt að hafa hvorn tveggja háttinn á, svo sem nú tíðkast.“

Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta frv.

og hef lokið máli mínu, herra forseti.