08.11.1978
Efri deild: 12. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 465 í B-deild Alþingistíðinda. (407)

71. mál, Framkvæmdastofnun ríkisins

Flm. (Stefán Jónsson):

Herra forseti. Þó ekki væri til annars en að geta þess, sem mér láðist í lok framsöguræðu minnar, að ég óska þess að málinu verði vísað til fjh.- og viðskn., vil ég segja örfá orð. En í leiðinni harma ég að ég skyldi ekki kveða enn fastar að orði heldur en ég gerði um aðdáun mína á þeim einstaklingum sem lagt hafa fé og tíma í tilraunir, eins og þeir dr. Snorri Hallgrímsson og félagar gerðu og eins og hv. þm. Eyjólfur K. Jónsson hefur gert, — tilraunir í sambandi við fiskræktarmálin, og þá dýrðlegu elju sem þessir menn hafa lagt ofan á allt annað í það að vekja athygli manna á þeim möguleikum, sem felast á þessu sviði, og á þeim lífstilgangi og þeirri lífsfyllingu sem gæti legið í því að helga líf sitt slíkum málum til að auka gæði þessa lands okkar.