15.05.1979
Neðri deild: 88. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4792 í B-deild Alþingistíðinda. (4074)
265. mál, tollheimta og tolleftirlit
Frsm. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Á þskj. 547 er frv. til l. um breyt. á lögum um tollheimtu og tolleftirlit.
Þær breytingar, sem er að finna í frv., eru í fyrsta lagi fólgnar í því, að ef ekki eru greidd aðflutningsgjöld á gjalddaga skuli þeir dráttarvextir, sem innheimtir eru, vera hliðstæðir þeim sem eru af öðrum gjöldum til ríkisins, eins og tekjuskatti og öðrum álíka gjöldum, samræming verði þarna á milli.
Annað ákvæði í þessu frv. er heimild til þess að veita innflytjendum greiðslufrest á aðflutningsgjöldum. Er talið eðlilegt að vextir af slíkum greiðslufresti séu hliðstæðir því sem gerist í bönkum á aðflutningsgjöldum sem innflytjendur kynnu fá ráð til þess að greiða ef ekki væri veittur greiðslufrestur.
Þegar endursenda þarf vöru, vélarhluta og annað því um líkt hefur þurft að setja tryggingu í sambandi við endursendinguna sem hefur verið fjárskuldbinding. Hér er lagt til að farið verði inn á þá leið, að aðrar tryggingar geti komið til greina, og þá jafnframt að heimila að lengja þennan frest úr hálfu ári í heilt ár.
Fjh.- og viðskn. hv. d. hefur fjallað um þetta mál og hefur orðið sammála um að mæla með því að það verði samþ. óbreytt.