15.05.1979
Neðri deild: 88. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4800 í B-deild Alþingistíðinda. (4083)
306. mál, eignarnám hluta jarðarinnar Deildartungu ásamt jarðhitaréttindum
Jósef H. Þorgeirsson:
Herra forseti. Frv. það, sem hér er til umr., á sér mjög langan aðdraganda. Það eru orðin fjöldamörg ár síðan íbúar á Akranesi og í Borgarnesi létu sér til hugar koma að hægt væri að leggja hitaveitu til þessara staða frá jarðhitasvæðum í Borgarfirði. En frv. þetta snýst, eins og kunnugt er, um það með hvaða hætti megi tryggja heitt vatn til Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Það er álit þeirra sérfræðinga, sem kannað hafa þetta mannvirki, að hagkvæmasti kosturinn, sem völ sé á, sé að nýta heita vatnið í Deildartunguhver, og að því hefur verið stefnt um alllangt tímabil.
Það fer ekkert milli mála, að í málum sem þessum hefði verið æskilegasti kosturinn að ná samkomulagi við eigendur Deildartunguhvers um hagnýtingu á vatninu í þessum hver til Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar. Ítrekaðar tilraunir hafa verið gerðar til þess að ná viðunandi samkomulagi, en þær hafa því miður ekki borið árangur. Hefur stjórn Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar teygt sig mjög langt til samkomulags, en þrátt fyrir það hefur samkomulag ekki orðið.
Það fer ekki á milli mála að í þessu máli eigast við hagsmunir mjög fjölmennra byggðarlaga sem krefjast þess að úr brýnum vanda verði leyst hið bráðasta. Niðurstaðan hefur orðið sú, að engin leið er önnur fyrir hendi en að afla heimildar til þess að taka hluta jarðarinnar Deildartungu í Reykholtsdalshreppi ásamt jarðhitaréttindum eignarnámi. Af þeirri ástæðu er þetta mál flutt. Það er skoðun þeirra, sem standa að Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar, að eðlilegt og sjálfsagt sé að greitt verði viðunandi verð fyrir þessi jarðhitaréttindi, en þar sem samkomulag hefur ekki tekist er ekki um annað að gera en að þeir fjármunir, sem fyrir jarðhitaréttindin á að greiða, verði metnir af óvilhöllum mönnum til að fá fram sanngjarnt verðmæti.
Það er skoðun forsvarsmanna notenda fyrirhugaðrar hitaveitu, að íbúar Akraness og Borgarness vilja mjög gjarnan eiga gott samstarf við eigendur jarðhitaréttarins og reyndar við alla íbúa Reykholtsdalshrepps um allar þessar framkvæmdir, enda er mikið í húfi að vel takist til fyrir alla aðila. Því er það von mín að mál þetta fái góðan byr í þinginu og verði samþykkt fyrir þinglausnir, enda eru gífurlegir hagsmunir fjölmennra byggðarlaga í húfi.