16.05.1979
Efri deild: 103. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4831 í B-deild Alþingistíðinda. (4101)
190. mál, ráðstafanir vegna lánsfjáráætlunar 1979
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Kröflumálið virðist ætla að verða samfelld sorgarsaga, bæði hinn mannlegi þáttur, eins og hv. 2. þm. Norðurl. e. var að lýsa fyrir okkur skilmerkilega áðan, og þá ekki síður náttúruöflin, sem hafa gert aðför að þessu mannanna verki. En ég vil aðeins segja það, að ég vona að Kröfluævintýrið, eins og það er stundum nefnt, eigi eftir að verða þjóðinni til góðs þótt síðar verði.
En það, sem ég ætlaði að gera aðeins að umtalsefni, var í sambandi við brtt., sem hér liggur fyrir á þskj. 735, og ræðu hv. 5. þm. Vestf. Ég verð að viðurkenna að ég er honum fyllilega sammála í þeim rökstuðningi sem hann hafði um þessi mál, og raunar er ég samþykkur þessari brtt, út af fyrir sig. Ég man það vel, að í sambandi við afgreiðslu fjárl. á s. l. hausti var mikið rætt um erindi orkuráðs. Þær tillögur voru vissulega tímabærar. Þar kom fram sá rökstuðningur sem hv. 5. þm. Vestf. lagði fram áðan fyrir þörfinni á þeim framkvæmdum sem hér er um að ræða.
Ég vil t. d. í sambandi við 1. brtt. hv. þm. um lántöku vegna jarðhitaleitar segja það, að það kom fram við umr. í Sþ. fyrir nokkru, þar sem ég lagði fram fsp. til hæstv. iðnrh. í sambandi við orkuleit á Snæfellsnesi sem raunar var búið að gera frumdrög að og búið að gefa yfirlýsingu um að ætti að framkvæma á s. l. ári, 1978, að ekki voru möguleikar á fjármagni til þess að Orkustofnun gæti staðið við þetta fyrirheit. Þarna er um að ræða djúpborun til þess að ganga úr skugga um virkjunarmöguleika til hitaveituframkvæmda fyrir svæði þar sem búa á fimmta þúsund íbúar. Þetta er ákaflega mikilvægt mál í okkar huga, og ég verð að segja það hér, að vissulega hef ég sterka löngun til að fylgja slíkri brtt. sem hefur komið fram í þessu máli. Hins vegar er lánsfjáráætlunin, eins og hún liggur fyrir í dag, á því stigi nú að sú mikla seinkun, sem hefur orðið á afgreiðslu hennar, hefur þegar valdið tjóni í þjóðfélaginu. Og það er alveg ljóst að við verðum að afgreiða hana nú ef á að vera hægt að ráðast skipulega í þær nauðsynlegu framkvæmdir sem hún þó inniheldur í flestum tilfellum.
Ég hef rætt þessi mál sérstaklega við hæstv. iðnrh. og hæstv. fjmrh. Miðað við þær yfirlýsingar sem hafa þegar komið fram hjá hæstv. fjmrh., og þau viðbrögð, sem hafa verið uppi höfð í sambandi við það mikla vandamál sem er almennt í orkumálum, ekki síst miðað við það ástand sem skapast hefur og raunverulega er hægt að kalla neyðarástand varðandi hið háa olíuverð, þá verð ég að vonast til að ríkisstj. muni á þessu ári gera allt sem mögulegt er til að greiða fyrir skynsamlegum vinnubrögðum til að reyna að leysa þessi mál. Ég vil segja það hér, bæði að því er varðar jarðhitaleit og eins að því er varðar sveitarafvæðingu og rafdreifikerfi í sveitum, að ég treysti því að við fjárlagagerð 1980 verði staðið öðruvísi að þessum málum en unnt var að gera við fjárlagaafgreiðslu 1979. Ég mun a. m. k. gera það sem í mínu valdi stendur, ef ég hef einhver áhrif, til þess að svo geti orðið. Þetta er, eins og hv. 5. þm. Vestf. lýsti áðan, mjög aðkallandi mál og hlýtur að flokkast undir eitt af forgangsverkefnum í byggðaþróun fyrir landið. Það er alveg ljóst, og um það hljótum við allir að vera sammála.
Mér þótti rétt að láta þetta koma fram, um leið og ég verð að lýsa því yfir, að ég mun fylgja því nál. frá fjh.- og viðskn. sem hér liggur fyrir, þó að ég hins vegar viðurkenni fyllilega þau rök sem komu fram hjá hv. 5. þm. Vestf. Ég vil enn fremur undirstrika það, að ég tel mikils virði þá yfirlýsingu sem hæstv. fjmrh. gaf áðan, því að yfirlýsingar hans gefa okkur, sem höfum miklar og vaxandi áhyggjur af orkumálum og þróun þeirra nú á síðustu tímum, nokkra vissu fyrir því að reynt verði að leysa þessi mál eftir því sem frekast verður unnt á þessu ári.