16.05.1979
Efri deild: 104. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4839 í B-deild Alþingistíðinda. (4118)
309. mál, húsnæði menningarstofnana
Flm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um húsnæði menningarstofnana ríkis og sveitarfélaga. Ég tel ekki rétt á þessum síðustu dögum þingsins að hafa langa framsögu fyrir till. sem þessari. Í grg. leituðust flm. við að setja fram í sem allra stystu máli meginatriðin sem liggja til grundvallar þessum tillöguflutningi, og vil ég láta nægja að vísa til þess sem þar segir.
Ég leyfi mér að leggja til að umr. verði frestað og till. vísað til hv. menntmn.