08.11.1978
Neðri deild: 13. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 473 í B-deild Alþingistíðinda. (412)
9. mál, Seðlabanki Íslands
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Ég verð að lýsa þeirri skoðun minni, að málflutningur hv. andstæðinga frv. um raunvexti minnir mig örlítið á söguna um karlinn sem ætlaði að gera við götin á sokkunum sínum með því að klippa þau af. Ég hef ekki heyrt í málflutningi hv. andstæðinga koma fram neina raunverulega rökstudda skoðun á því, hvers vegna við ættum ekki að taka upp raunvexti á Íslandi. Hv. andstæðingar hafa lagt á það höfuðáherslu, að raunvextir mundu kippa fótunum, nánast ganga af atvinnurekstri í landinu dauðum. Ég þori að fullyrða á þessum stað, að það eru ekki vaxtakjörin sem ganga af atvinnurekstrinum dauðum, það er lánsfjárskorturinn sem það gerir.
Ég vil minna á það, að Seðlabanki Íslands á þessa dagana við mjög mikla erfiðleika að stríða vegna endurkaupa á lánum til atvinnurekstrar í landinu sem eru að verða honum ofviða. Seðlabankinn telur að ástæðan fyrir þessu sé fyrst og fremst sú, að innlán hafi hrunið algerlega saman hér á landi á síðustu árum. Tölur sanna þetta einnig. Þetta veldur t.d. — vegna orða Stefáns Valgeirssonar, hv. þm. — stórkostlegum erfiðleikum í því að hækka afurðalán til bænda þessa dagana. Ég hef hér í höndum nýja skýrslu frá Seðlabanka Íslands þar sem fjallað er um erfiðleika bankans við endurkaup á afurðalánum og fleiru slíku. Þar segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:
„Eina raunhæfa leiðin til að snúa þessari þróun við er að efla peningalegan sparnað með því að bæta ávöxtunarkjör innlána hjá innlánsstofnunum. Ef innlánin hefðu haldist óbreytt sem hlutfall af þjóðarframleiðslu síðustu 8 árin væri bundið fé í Seðlabanka nú um 18 milljörðum kr. hærra en það er eða um 12 milljörðum umfram endurkaupin. Leið raunhæfra innlánsvaxta er því augljóslega sú leið sem fara ber í þessu efni.“
Þetta segir í skýrslu Seðlabanka Íslands, þar sem jafnframt kemur fram hvernig hlutfall bundinna innistæðna í Seðlabanka sem hundraðshluta af endurkeyptum lánum hefur hrunið gersamlega síðan árið 1971. Árið 1971 nam þetta hlutfall 196%. Árið 1975 var hlutfallið komið í 100%, árið 1977 í 94%, í ár er áætlað að hlutfallið verði 78% og fari á næsta ári niður í 76%. Menn geta þess vegna spurt sig: Hver er ástæðan fyrir rekstrarerfiðleikum atvinnuveganna? Eru það þessir margumræddu of háu vextir, eða er það lánsfjárskorturinn? Ég hallast að því, að það sé lánsfjárskorturinn. Prófessor Ólafur Björnsson hefur lýst því yfir m.a., að það séu í rauninni ekki vandamálin við vaxtagreiðsluna sem höfuðmáli skiptir, ef lánsfjármagnið er fyrir hendi.
Ég held að þeir menn, sem hafa staðið hér upp, þeir hv. þm., berjist fyrir þeirri einföldu stefnu, að menn geti fengið lán í bönkum án þess að þurfa að endurgreiða þau í raunkrónum, þeir fái gjafir frá bönkunum, og það eru einmitt þessar gjafir sem hafa rennt stoðum undir verðbólgubraskarana í íslensku þjóðfélagi, — mennina sem hafa haft aðgang að bönkum, fengið 3, 5, 6 millj. kr. lán, á meðan maðurinn á götunni, sem svo hefur verið kallaður, hefur getað fengið skammtað 100–200 þús. kr. Í þessu felst misréttið í þjóðfélaginu. Að hafa á móti raunvöxtum er svipað því og að biðja um að sérstakur hópur í þjóðfélaginu geti fengið gjafir frá sparifjáreigendum. Svo einfalt er þetta mál. Við getum tekið sem dæmi, að maður, sem fær að láni hjá kunningja sínum í eitt ár stóran amerískan bíl sem kostar 4–5 millj., skili bílnum að ári í formi Volkswagens sem kostar 3 millj. Þetta er rétta myndin af þeirri lánastarfsemi sem rekin hefur verið á Íslandi síðustu árin.
Ég vil einnig lýsa þeirri skoðun minni, að í öllum umr., sem hér hafa farið fram um raunvextina, hefur lýst sér það sem ég hef leyft mér að kalla verðbólgið hugarfar, — hugarfar kynslóðar sem hefur stjórnað þessu landi í óðaverðbólgu um árabil, — kynslóðar sem ekki getur hugsað sér peningamál þjóðfélagsins, efnahagsmálin, í öðru horfi en því, að hér geysi 40–50% verðbólga. Ég verð að segja m.a., að í andmælum hv. þm. Lúðvíks Jósepssonar lýsir sér sú skoðun, að þessi verðbólga muni ríkja áfram á Íslandi. Það er þetta sem við erum að mótmæla sem flytjum þetta frv. Við viljum berjast gegn þessari verðbólgu, við viljum beita öllum þeim ráðum, sem við kunnum og tiltæk geta verið, til að ráðast gegn þessari meinvætti í íslensku efnahagslífi. Þetta er einn þátturinn af aðferðunum, eitt meðalið til að lækna sjúkdóminn.
Ég held að sá munur, sem hefur komið hér fram í málflutningi þeirra sem eru með og móti þessu frv., byggist á því, hversu mikil alvara mönnum er í því í raun og veru að berjast gegn verðbólgunni. Þar held ég að skilji á milli feigs og ófeigs í þessu máli.