08.11.1978
Neðri deild: 13. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 482 í B-deild Alþingistíðinda. (415)

9. mál, Seðlabanki Íslands

Félmrh. (Magnús H. Magnússon):

Herra forseti. Hv. 1. þm. Austurl. sagði, að það væri ekkert að marka að miða sparifjáreign við hlutfall af þjóðareign, og sagði, að þjóðarframleiðsla og þjóðareign væru skrifaðar upp um leið og gengið væri fellt. Þetta er rétt. En þá vil ég líka minna á það, að spariféð vex á ári um 20–30%, þó að enginn leggi inn eina einustu krónu, vegna þess að vöxtunum er bætt við. Ég sé því ekki að það sé hægt að nota aðra aðferð en þá, sem Seðlabankinn notar, til þess að bera þetta saman.

Hv. þm. lét í ljós furðu sína yfir málflutningi mínum varðandi húsnæðismálin. En þá vil ég minna hann á það, að allir, hver einasti maður, sem í alvöru hugsa um húsnæðismálalán, þar með taldir allir fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar, eru fyrir löngu búnir að gera sér grein fyrir því, að það verður að verðtryggja lánin. Það er auðvitað ekki hægt fyrir húsnæðismálastjórn að taka lán hjá lífeyrissjóðunum með vöxtum og verðtryggingu og lána svo út óverðtryggt. Þá mundi Byggingarsjóður ríkisins tæmast, það væri eins og að henda í botnlausa tunnu, hann mundi aldrei verða þess megnugur að gera nein stórátök. Þess vegna hafa allir, — ég endurtek það, — allir og líka fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar lagt til að lánin verði að fullu verðtryggð. Reikna þeir þó með að raunvextir væru núll á verkamannabústaðalánum en einhvers staðar á milli 2 og 3% á almennum lánum.

Hv. þm. segir að þetta muni fara illa með húsbyggjendur. Við reiknum með því, að verkamannabústaðirnir fari upp í 90% lán frá ríkinu með þessum kjörum. Þau eru tekin til 32 ára og verðtryggt að fullu. Hjá öðrum reiknum við með 80% verðtryggt að fullu með 3% vöxtum. Ef menn fengju þessi 80% með þessum verðtryggðu kjörum þýddi það, að það yrði að borga fyrir þessi 80% af meðalíbúð um það bil 60 þús. á mánuði. Nú borga menn 150–200 þús. og miklu meira en það á mánuði, þeir sem eru nýbúnir að byggja eða kaupa, þannig að þetta hjálpar geysilega mikið öllum þeim sem eru að kaupa, öllum þeim sem eru að byggja, einmitt þetta kerfi, sem náttúrlega hlýtur að byggjast á því, að þetta verði verðtryggt, annars verður sjóðurinn aldrei þess megnugur að geta gert þetta. Hins vegar kemur það á móti, að eftir 15–20 ár halda menn áfram að borga, að vísu minnkandi hluta af launum sínum í þetta kerfi, en ekki núll eða hér um bil núll eins og gerist í dag. Það tekur því varla að fara í banka og borga af lánum sem eru orðin 15–20 ára gömul.

Þá er spurt: Hvernig á að fjármagna þetta? Seðlabankinn telur að það vanti 70 milljarða inn í kerfið til þess að halda sama hlutfalli og var 1971 eða 1972, ef ég man rétt. Ég er sannfærður um að þessir 15 milljarðar, sem hv. 1. þm. Austurl. var að tala um að væri lánað úr bankakerfinu til húsbyggjenda núna, sú upphæð mundi koma margföld inn í bankana, sem þeir gætu lánað aftur út verðtryggt, ef þetta frv, yrði að lögum.