16.05.1979
Neðri deild: 89. fundur, 100. löggjafarþing.
Sjá dálk 4854 í B-deild Alþingistíðinda. (4177)
270. mál, aðstoð við þroskahefta
Félmrh. (Magnús H. Magnússon):
Herra forseti. Hv. þm. Sverrir Hermannsson talaði um að með ákvæðum frv. væri verið að brjóta tvö höfuðatriði í lögum um efnahagsmál o. fl. Annars vegar vantaði kostnaðarmat. Það getur varla verið rétt hjá honum. Hér er talað um ákveðna upphæð, þannig að það fellur um sjálft sig. Hins vegar er talað um að í frv. sé markaður tekjustofn sem eigi að endurskoða. Það er auðvitað rétt, og kom mjög skýrt fram hjá hæstv. dómsmrh. í umr. áðan, að þessi tekjustofn verður eins og aðrir markaðir tekjustofnar endurskoðaður fyrir áramót, eins og lögin um stjórn efnahagsmála o. fl. gera ráð fyrir. Ég tel að frá því sjónarmiði sé ekki nein hætta á ferðum. Ég lít þannig á, að samþykkt frv., eins og það er núna, sé fyrst og fremst sterk viljayfirlýsing hins háa Alþingis um að verulegu fjármagni skuli varið til málefna þroskaheftra. Ef brtt. verður aftur á móti samþ. verður að draga þann vilja Alþ. í efa.